Arnþrúður íhugar alvarlega að sækja um útvarpsstjórastöðuna Jakob Bjarnar skrifar 18. desember 2013 15:39 Arnþrúður Karlsdóttir og útvarpshúsið. Vel gæti orðið að Arnþrúður verði næsti útvarpsstjóri RÚV ofh.
Ingvi Hrafn Óskarsson, formaður stjórnar RÚV ofh, sagði að þess væri ekki langt að bíða að staða útvarpsstjóra yrði auglýst laus til umsóknar. Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri og eigandi Útvarps Sögu, sækir að öllum líkindum um starfi.Eða, ætlar þú ekki örugglega að sækja um? „Þetta er gríðarlega leiðandi spurning. Ég er að hugsa málið. Eigum við ekki að segja það? Ég hef verið beðin um að hugsa það mjög alvarlega,“ segir Arnþrúður og tekur vel í þennan möguleika: „Þetta ber nú allt svo brátt að. Maður er að lesa í umhverfið og hvernig þetta allt lítur út og hvort það er einhver sem er fyrirfram ákveðinn sem ég held að sé nú ekki. Þarf að skoða mínar aðstæður.“ Víst er að erfitt yrði að líta framhjá Arnþrúði ef hún sækir um. Hún hefur einna mesta reynslu af útvarpsmálum allra Íslendinga. Hún hefur nú átt og rekið Útvarp Sögu í tíu ár. „Alltaf á sömu kennitölunni,“ segir Arnþrúður sem er lærð sem blaða- og fréttamaður frá Blaðamannaháskólanum í Osló, útskrifuð þaðan. Og er einnig með próf í heimsspeki og fjölmiðlafræði frá Noregi. „Á þessum tíma starfaði ég fyrir íslenska sjónvarpið í Noregi og vann líka fyrir NRK." Þá var Arnþrúður bæjarfulltrúi, vel að merkja, fyrir Framsóknarflokkinn í Hafnarfirði og sat um stund á þingi. „Já, fljótt á litið hlýtur það að vera að ég sé reynslumest. Í það minnsta ef litið er til kvenna. Mér er reyndar afskaplega illa við kynjakvóta. Og mér finnst niðurlægjandi að konur eigi að fá einhverja forgjöf, fyrir okkur konur sem höfum verið í atvinnulífinu og þorað að taka áhættu með tvær hendur tómar. Við stöndum í fæturna og þá er það niðurlægjandi þegar konur eru að fá stöður á silfurfati. Og einhverjir aðrir búnir að tryggja fjármagnið. En, ég byrjaði á Ríkisútvarpinu, á gömlu Gufunni, fyrir yfir 30 árum. Svo var ég á Rás 2 þegar hún byrjaði, var ég á tíma fréttastjóri Bylgjunnar fjótlega eftir að hún byrjaði. Þá vissi nú enginn hvort sú stöð yrði í loftinu. En Bylgjan er búin að sanna sig í dag.“
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira