Íslendingaliðin unnu sína leiki í franska handboltanum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. desember 2013 22:27 Robert Gunnarsson. Mynd/AFP
Íslendingaliðin Paris Saint-Germain, HBC Nantes og Saint Raphaël unnu öll sína leiki í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld og alls litu fimm íslensk mörk dagsins ljós í leikjum liðanna. Paris Saint-Germain vann sex marka heimasigur á Tremblay, 29-23, en liðið endaði þar með tveggja leikja taphrinu sína. PSG er búið að vinna alla sex heimaleiki sína á tímabilinu en töpin í síðustu tveimur útileikjum gaf Dunkerque færi á að taka toppsætið. Róbert Gunnarsson nýtti öll þrjú skotin sín í leiknum en Ásgeir Örn Hallgrímsson komst ekki á blað. Daniel Narcisse og Marko Kopljar voru markahæstir með fimm mörk hvor en Mikkel Hansen skoraði fjögur mörk úr fjórum skotum. Nantes vann fimm marka útisigur á AIX, 27-22, og hefur nú unnið þrjá leiki í röð. Nantes er nú í fimmta sæti deildarinnar, fimm stigum á eftir toppliðinu. Gunnar Steinn Jónsson skoraði 2 mörk út 5 skotum í leiknum en Valero Rivera var markahæstur með 10 mörk úr 11 skotum. Jorge Maqueda Peno skoraði átta mörk fyrir Nantes-liðið. Gorazd Skof átti mjög góðan leik í markinu. Arnór Atlason lék ekki með Saint Raphaël vegna meiðsla en liðið vann 30-28 útisigur á US Ivry og er nú í sjötta sæti deildarinnar með jafnmörg stig og Nantes.
Handbolti Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Hetjuleg barátta en þriggja marka tap í fyrsta Evrópuleik Ísfirðinga Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Mbappé bætti fyrir vítaklúðrið og Frakkar brunuðu í undanúrslitin Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Fleiri fréttir Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Sjá meira