Engin ríkisstjórn lifir að eilífu Heimir Már Pétursson skrifar 10. nóvember 2013 19:17
Vilhjálmur Bjarnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir mikilvægt að utanríkisráðherra upplýsi hversu langt vinna við samningsmarkmið Íslands í mikilvægum málaflokkum eru komin í aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Hann minnir á að engar ríkisstjórnir lifi að eilífu. Í fyrirspurn sem Vilhjálmur lagði fram á Alþingi fyrir helgi spyr hann utanríkisráðherra hvort vinna hafi verið hafin við gerð samningsmarkmiða í landbúnaðarmálum, sjávarútvegsmálum, byggðamálum og gjaldeyrismálum í aðildarviðræðunum við Evrópusambandið. Ef svo er vill Vilhjálmur að ráðherra upplýsi um innihald þeirra og svari því hvort búið var að kynna þessi markmið fyrir Evrópusambandinu. Mikilvægt sé að fá þetta upplýst hvort sem viðræðum verði haldið áfram eða ekki. En Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra hefur lýst því yfir að hann voni að Ísland gangi aldrei í Evrópusambandið.Hefur það þá nokkuð upp á sig að spyrja um þetta?„Lífið heldur áfram og í gegnum tíðina hafa orðið stjórnarskipti af og til og mannaskipti. Enginn er eilífur í neinum stjórnarstól, hvorki ég né ráðherrar,“ segir Vilhjálmur sem er fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í utanríkismálanefnd. „Þannig að við skulum huga að því hvernig mál þróast,“ bætir hann við. Það sé grundvallaratriði að fylgjast vel með og að umræðan taki mið af upplýsingum en ekki tilfinningum og fyrirframgefnum niðurstöðum í samningaviðræðum.Ertu að spá því að það verði jafnvel breytingar á ríkisstjórninni á þessu kjörtímabili?„Það er kosið á fjögurra ára fresti og ég spái engu um þessa ríkisstjórn frekar en aðrar. Ég er kannski ekki að spá neinu fram í tímann en vek athygli á því að við erum hluti af Evrópu,“ segir Vilhjálmur. Ekki liggur fyrir hvort núverandi ríkisstjórn boði yfirleitt til þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald viðræðna enda ekki mikill áhugi á því hjá heitustu andstæðingum Evrópusambandins innan ríkisstjórnarflokkanna. „Það er alveg öruggt mál, hvernig sem lyktir verða, að það verður þjóðaratkvæðagreiðsla einhvern tíma um evrópumál. Sú þjóðaratkvæðagreiðsla hlýtur alltaf að taka mið af upplýsingum og að upplýsingum sé miðlað nokkurn veginn jafnóðum. Og fyrirspurn mín er einmitt hluti af þeirri upplýsingamiðlun sem ég tel að sé nauðsynleg,“ segir Vilhjálmur.
Mest lesið Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Sjá meira