Handbolti

Flensburg sigraði í stórleik dagsins

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Ólafur Gústafsson komst ekki á blað í leiknum
Ólafur Gústafsson komst ekki á blað í leiknum Mynd/Gettyimages
Flensburg lagði HSV 31-29 í stórleik dagsins í þýska handboltanum í kvöld. Með sigrinum fer Flensburg upp fyrir Rhein-Necker Löwen í þriðja sætið í deildinni.

Ólafur Gústafsson komst ekki á blað í liði Flensburg en Drasko Nenadic var atkvæðamestur með 9 mörk. Í liði HSV var íslenski daninn Hans Lindberg lang markahæstur með 12 mörk.

HSV er í fimmta sæti í deildinni eftir leiki dagsins, sex stigum á eftir toppliði Kiel. HSV mætir Rhein-Neckar Löwen í næstu umferð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×