Aftur farið að hvessa suðvestanlands Gissur Sigurðsson skrifar 11. nóvember 2013 07:25
Aftur er farið að hvessa suðvestanlands eftir að veður lægði upp úr miðnætti. Spáð er suðvestan 10 til 23 metrum á sekúndu suðvestanlands. Meðal annars fór járn að losna af gömlu sundlauginni á Keflavík undir morgun og sömuleiðis af húsi við Aflagranda í Reykjavík, en björgunarmenn heftu fokið. Síðan á að snúast í hvassa norðanátt með slyddu eða snjókomu um noðrvestanvert landið í kvöld. Um hundrað björgunarsveitarmenn sinntu yfir hundrað útköllum í gær, lang flestum á höfuðborgarsvæðinu, suður með sjó og á Akranesi. Þrátt fyrir að víða yrði tjón þegar vinnupallar hrundu á bíla eða lausamunir fuku, varð hvergi stórtjón, svo vitað sé, og engan sakaði, þrátt fyrir að björgunarmenn legðu sig víða í hættu. Þá fékk slökkviliðið útkall í gærkvöldi þar sem óttast var að stórt tré við Skeggjagötu í Reykjavík væri að brotna, og var það sagað niður. Röskun varð á millilandaflugi en svo virðist sem það verði nær alveg hnökralaust núna með morgninum. Innanlandsflug var líka fellt niður eftir hádegi í dag, og verið er að kanna aðstæður til flugs í dag. Sárafá fiskiskip eru á sjó umhverfis landið, nema örfá stærstu skipin, og eru sum þeirra í vari. Vindhraðinn var minni en búist var við þegar veðrið gekk norðaustur af landinu í gærkvöldi og í nótt og olli ekki teljandi vandræðum þar nema hvað hefta þurfti fok af húsi í Ólafsfirði, og binda niður bát á Húsavík,sem stóð á vagni á hafnarsvæðinu.
Mest lesið Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Sjá meira