Kærleikskerti til styrktar Fjölskylduhjálp Samúel Karl Ólason skrifar 12. nóvember 2013 12:29 Hægt er að fá Kærleikskerti með 16 mismunandi áletrunum, eftir því hverjum kertið er tileinkað. Mynd/PIPAR\TBWA
Fjölskylduhjálp Íslands hefur hafið framleiðslu á útikertum, undir heitinu Kærleikskerti, sem selja á til fjármögnunar matargjafa um jólin. Þau eru framleidd frá grunni af sjálfboðaliðum við húsnæði Fjölskylduhjálpar í Iðufelli. Nú eru nokkur þúsund kerti klár, sem fara í sölu á fimmtudaginn. Fjölskylduhjálp hefur keypt 22 tonn af mör sem nota á til kertagerðarinnar. Kertin verða til sölu á stór-Reykjavíkursvæðinu í húsakynnum Fjölskylduhjálparinnar að Iðufelli 14, á bensínstöðvum Skeljungs, í verslunum Krónunnar, Nettó, Hagkaupa og í Garðheimum. „Kertin kosta 590 krónur og hver einasta króna rennur í matarsjóðinn. Við fengum 48.000 miða gefins frá Litla prenti, öll hönnun hjá Marko merkjum var gjöf, hús frá Hafnarbakka undir framleiðsluna, stórtækar vélar til að mylja mör fengum við lánað frá Esju kjötsmiðju og Samkaup gaf okkur risastóra eldavél. Allsstaðar mætum við góðvilja. Tilkostnaðurinn er enginn nema kaup á dósum, mör og kveikiþráðum,“ segir Ásgerður Jóna Flosadóttir formaður Fjölskylduhjálpar Íslands í samtali við Vísi. Kertin eru framleidd af sjálfboðaliðum og nú eru nokkur þúsund kerti klár sem fara í sölu á fimmtudaginn næstkomandi. „Þetta er kraftafólk sem gerir þessi kerti í sjálfboðavinnu. Mér finnst þetta alveg rosalega flott framtak hjá sjálfboðaliðunum og þau auga heiður skilinn fyrir."Kertin hafa fjölda viðeigandi áletrana til þeirra sem hægt er að tileinka kærleikskertið, alls 16. „Þetta eru allt mjög fallegar áletranir," segir Ásgerður. Þörfin fyrir jólaaðstoð frá Fjölskylduhjálpinni hefur sjaldan verið meiri en núna og þegar hafa borist um 700 umsóknir um aðstoð. „Við munum aldrei geta þjónað öllum og líklega þurfa margir frá að hverfa. Við ætlum að reyna að afgreiða alla sem við getum, en sá fjöldi sem fær fullkomna jólaaðstoð, verður takmarkaður."
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Fleiri fréttir Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sjá meira