Innlent

Valið neytandans þegar upp er staðið

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Steinar segir marga framleiðendur hér á landi alla af vilja gerðir til að bjóða upp á holla matvöru.
Steinar segir marga framleiðendur hér á landi alla af vilja gerðir til að bjóða upp á holla matvöru.
Steinar B. Aðalbjörnsson, næringarfræðingur og markaðsstjóri hjá Matís, segist fagna allri umræðu um sykurmagn í matvöru, en bloggarinn Teitur Atlason gagnrýndi markaðssetningu Mjólkursamsölunnar á jólajógúrt í gær og sagði fyrirtækið þurfa að sýna samfélagslega ábyrgð.

„Það er gott að það sé vakin athygli á þessu,“ segir Steinar sem telur það rétt að of mikið af sykri sé í boði. „Þá er ég að tala almennt en ekki sérstaklega um Mjólkursamsöluna. Ég er ekki að segja að ég taki endilega undir með Teiti með hvernig hann fór fram með þetta. Hins vegar er gott að fólk úti í samfélaginu, almenningur jafnt sem fræðafólk, veki athygli á því hvernig við getum valið betur. Þá hlusta fyrirtækin líka.“

Steinar segir stóra vandamálið vera það að almenna fræðslu vanti í samfélaginu um hvað sé gott og rétt varðandi matvæli. „Við þurfum að líta á menntakerfið. Hvar er menntunin og fræðslan til að við getum tekið upplýsta ákvörðun um hvort matvæli séu góð fyrir okkur eða ekki? Viljum við ekki að börn fái grunnkennslu í næringarfræði strax í grunnskóla?“

Varðandi samfélagslega ábyrgð segir Steinar að valið sé neytandans þegar upp er staðið. „Án þess að halda hlífðarskildi yfir einum eða neinum þá er valið okkar. Ég held að það geti allir litið í eign barm, stjórnvöld, neytendur og framleiðsluaðilar, og spurt sig hvort það sé eitthvað sem megi bæta. Ég hef talað um þessa samfélagslegu ábyrgð en mér finnst pínulítill munur á því að segja beint út að vara sé holl sem er það ekki, og því að segja kannski ekkert um hana en ætlast til að fólk lesi á umbúðir.“

Margir gera vel

Steinar segir marga framleiðendur hér á landi alla af vilja gerðir til að bjóða upp á holla matvöru. Nefnir hann Mjólkursamsöluna sem dæmi. „Sérstaklega síðustu fimm ár hafa þeir komið með fullt af vörum með minni sykri en áður. En við látum markaðsöflin ráða of miklu.“

Þá nefnir Steinar fleiri fyrirtæki sem eru að gera vel að hans mati. „Við getum til dæmis nefnt matvöruverslunina Víði. Þar er gríðarlega gott úrval af ávöxtum og grænmeti. Þeir gæta sín líka á að vera ekki með nammibar, og að vera ekki með sælgæti við kassa. Krónan er annað dæmi, en verslunin fór fyrst af stað með Matís og setti upp veggspjöld við nammibarina þar sem viðmiðunin var einn moli á hvert aldursár. Yggdrasill leggja sig fram við að bjóða upp á hreinar og góðar vörur. Það er fullt af fyrirtækjum að gera vel, en mikilvægast er að allir, almenningur, ég sem fræðimaður og þú sem fréttamaður, séu vel upplýstir til að geta tekið góðar ákvarðanir.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×