Innlent

Jólagjöf ríkisstjórnarinnar til styrktarsamtaka

Heimir Már Pétursson skrifar
mynd/gva
Ríkisstjórnin samþykkti í morgun, að tillögu forsætisráðherra, að veita samtals 8. milljónum króna styrk í tilefni jóla til tíu góðgerðasamtaka sem starfa hér á landi.

Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að Mæðrastyrksnefnd Akureyrar, Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar, Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Mæðrastyrksnefnd Vesturlands og Hjálpræðisherinn á Íslandi fái 650.000 kr. hver samtök.

Hjálparstarf kirkjunnar, Samhjálp-félagasamtök, Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Rauði kross Íslands og Fjölskylduhjálp Íslands fái 850.000 kr. hver samtök.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×