Innlent

Utanríkisráðherra hjólar í Þorstein

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Gunnar Bragi Sveinsson og Þorsteinn Pálsson.
Gunnar Bragi Sveinsson og Þorsteinn Pálsson.
„Þorsteinn Pálsson er um margt geðugur maður og dagsfarsprúður. Því kemur því á óvart hversu ómálefnalegur hann er orðinn þar sem hann stendur upp á kögunarhóli Fréttablaðsins, þar sem hann í þríliðu pönkast á því fólki og flokkum sem ekki vilja ganga í Evrópusambandið,“ skrifar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra á heimasíðu sinni.

Gunnar Bragi vitnar í grein Þorsteins frá 2. nóvember sem birtist í Fréttablaðinu og hér á Vísi. Gunnar segir greinina ósvífna og eigi að sýna fram á að Framsókn sé „þjóðernispopulistaflokkur“.

„Hvaða dónaskapur er það að telja menn einangrunarsinna fyrir að hafa þá skoðun að hagsmunum okkar sé betur borgið utan Evrópusambandsins? Ríkisstjórnin hvetur til samvinnu og aukins samstarfs við Evrópusambandið, Evrópuþjóðir, Kanada, Bandaríkin og Kína, sem og nýrrar sóknar til norðurs,“ skrifar Gunnar Bragi og telur gagnrýni Þorsteins á stefnu flokksins hvað varðar skuldaleiðréttingu ómálefnalega.

„Þorsteinn vogar sér að halda því fram að það sé popúlismi að takast á við brýnasta verkefni samtímans. Það er honum til vansa. Ég hef velt því fyrir mér hvað gengur eiginlega að manninum og rifjast upp fyrir mér atburðarás sem ég heyrði talað um þegar ég var ungur maður fyrir norðan, en sem kunnugt er afgreiddi ég þar bæði bensín og mokaði skít, ef þess þurfti.

Sagt var að þegar Sjálfstæðisflokkurinn skrapp úr hendi Þorsteins, eftir honum hafði reynst ofviða að stjórna ráðuneyti sem hann veitti forstöðu hafi hann kennt Framsókn um. Allir vita auðvitað að örlög Þorsteins voru í eigin hendi alltaf og sjálfstæðismenn völdu foringja sem þeir töldu sigurstranglegri, án aðkomu og afskipta fólks úr öðrum flokkum.

Sagt er að Þorsteinn hafi síðan lagt fæð á framsóknarmenn.

Það er tímabært fyrir Þorstein að átta sig á að það voru hans eigin flokksmenn sem höfnuðu honum, líkt og þeir hafa hafnað Evrópusambandinu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×