Telja að ummæli hafi mögulega skaðað Íbúðalánasjóð 5. nóvember 2013 18:45 Íbúðalánasjóður
Þingmenn stjórnarandstöðunnar telja að ummæli formanns fjárlaganefndar um að ríkið beri ekki ábyrgð á Íbúðalánasjóði geti skaðað sjóðinn. Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokks og formaður fjárlaganefndar Alþingis sagði í viðtali við Bloomberg fréttastofuna í síðustu viku að hún efist um að ríkið beri ábyrgð á Íbúðalánasjóði. Ummælin urðu til þess að minnihluti fjárlaganefndar óskaði eftir aukafundi til að fara yfir málið en þeirri beiðni var hafnað. Nefndin mun hins vegar funda með fjármálaráðherra, félagsmálaráðherra og forstjóra Fjármálaeftirlitsins á mánudag vegna málsins. Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, telur að ríkið beri ábyrgð á sjóðnum. Hún segir hins vegar mikilvægt að eyða öllum vafa varðandi þetta mál. Hún vill að ráðherrar skýri afstöðu ríkisstjórnarinnar til málsins. „Auðvitað getur þetta haft áhrif á vaxtastig og lántökumöguleika sjóðsins. Það er mikilvægt að fá þetta á hreint,“ segir Oddný. Vigdís hafnar því að ummæli hennar hafi mögulega skaðað sjóðinn. „Ég sé ekki hvernig þetta ætti að skaða sjóðinn þegar við erum að velta því fyrir okkur hvort það sé raunveruleg ríkisábyrgð á sjóðnum. Hvort það sé einföld ríkisábyrgð á sjóðnum eða hvernig ríkisábyrgð er á sjóðnum og hvort hún sé yfir höfuð á sjóðnum. Þetta er bara umræða sem við þurfum að taka sem samfélag sem er að reyna að ná sér á strik eftir bankahrun,“ segir Vigdís.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Fleiri fréttir Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Sjá meira