Innlent

Gríðarlegt álag á héraðsdómstólum

Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar
Alþingi hefur samþykkt lög sem kveða á um að dómarar verði áfram 43 að minnsta kosti til 2015. Þetta er vegna mikils álags á dómstóla landsins.
Alþingi hefur samþykkt lög sem kveða á um að dómarar verði áfram 43 að minnsta kosti til 2015. Þetta er vegna mikils álags á dómstóla landsins.
Fimm árum eftir hrun er enn mikið álag á héraðsdómstóla landsins sérstaklega Héraðsdóm Reykjavíkur.  Ekki er búist við að álagið minnki í bráð.

 Enn er talin  von á mörgum og þungum  málum meðal annars frá embætti sérstaks saksóknara. Því er ekki talin forsemda til þess að fækka dómörum frá því sem nú er.

Þetta kemur fram í athugasemdum með nýsamþykktum lögum um dómstóla.

Ári eftir hrun samþykkti Alþingi að fjölga dómurum í héraði  úr 38 í 43 vegna aukins álags á dómstóla landsins í kjölfar bankahrunsins. Þessi fjöldi dómara var tímabundinn að því leyti að ekki skyldi ráðið í þær stöður sem losnuðu eftir 1. Janúar 2013 þar til fjöldi dómara yrði aftur 38.

 Í maí í vor gerði dómstólaráð dómsmálaráðuneytinu grein fyrir áhyggjum sínum af áframhaldandi álagi á dómstólunum, sérstaklega Héraðsdómi Reykjavíkur.

Var vísað til upplýsinga frá Héraðsdómi Reykjavíkur um að mörg þeirra einkamála sem dómstólar takist nú á við og varði málefni föllnu bankanna eigi sér fá fordæmi.

Málin séu flókin og umfangsmikil og kalli á fjölskipaðan dóm. Þá hafi ágreiningsmálum vegna gjaldþrotaskipta fjölgað og séu þau mál mjög þung í vinnslu.

Jafnframt sé búist við fjölda mála frá embætti sérstaks saksóknara sem séu flókin og umfangsmikil og bætist þau við mikla aukningu í kynferðisbrotamálum.

Var því í bréfi dómstólaráðs lagt til að dómurum yrði fjölgað um tvo til þrjá og að heimildin til að fjöldi dómara væri 43 yrði framlengd  að  minnsta kosti  til ársloka 2015.  Alþingi samþykkti í dag að færa þetta í lög.

Áætlað er það kosti 86 milljónir á næsta ári að halda óbreyttum fjölda héraðsdómara 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×