Meint mannréttindafrekja og lögspekingur saman í nefnd Jakob Bjarnar skrifar 7. nóvember 2013 13:08 Sigurður Líndal og Freyja Haraldsdóttir. Þeir sem til þekkja telja ólíklegt að þessi tvö geti orðið sammála um nokkurn hlut.
Illugi Jökulsson, fyrrverandi fulltrúi stjórnlagaráðs, telur víst að með skipan nýrrar stjórnarskrárnefndar sé ætlunin að svæfa allar hugmyndir um gagngerar breytingar á stjórnarskrá. Þá telur hann afar ólíklegt að nefndarmenn nái saman um nokkurn hlut. Forsætisráðherra skipaði í gær nýja stjórnarskrárnefnd. Í henni eru fulltrúar flokka á þingi en formaður er Sigurður Líndal lagaprófessor, skipaður sérstaklega af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni. Sigurður hefur verið gagnrýninn mjög á störf stjórnlagaráðs sem starfaði 2005-2007. Illugi Jökulsson var einn fulltrúa þar og hann er í meðallagi bjartsýnn á að þessi nefnd muni skila tilætluðum árangri. „Í fyrsta lagi vil ég taka fram að það fór hér fram þjóðaratkvæðagreiðsla fyrir ekki svo löngu síðan þar sem dágóður meirihluti þeirra sem atkvæði greiddi lýsti þeirri skoðun sinni að nota ætti stjórnarskrá stjórnlagaráðs sem grundvöll að nýrri stjórnarskrá. Mér finnst að stjórnvöldum beri skylda til að fara eftir því. En ég get ekki séð, án þess að hafa kannað málið mjög nákvæmlega, að þarna eigi nokkuð að gera það. Þar er í raun verið að ganga gegn þessari þjóðaratkvæðagreiðslu, og það finnst mér ekki gott mál.“ Þetta er burtséð frá hverjir sitja í nefndinni að sögn Illuga, en ekki verður litið hjá því að Sigurður Líndal stjórnar starfi nefndarinnar og það hlýtur að hafa sitt að segja? „Já. Með hyldjúpri virðingu fyrir Sigurði Líndal er hann ekki maður sem ég mundi hafa skipað ef ég vildi fá nýja og framsækna stjórnarskrá. Ég held að óþarfi sé fyrir mig að hafa um það öllu fleiri orð. Mér sýnist þessi nefnd skipuð fyrst og fremst til að svæfa málið eina ferðina enn.“ Skipan nefndarinnar hefur verið til umræðu á samfélagsmiðlum og bloggi og þar bent á að sá mannskapur sem í nefndinni situr sé ekki líklegur til að ná saman um nokkurn skapaðan hlut. „Ég held að það sé mikið til í því. Vægast sagt. Það eru þarna mjög ólík sjónarmið greinilega uppi, eða munu verða skyldi maður ætla miðað við það sem margir nefndarmanna hafa látið frá sér fara áður. Til dæmis held ég að Freyja Haraldsdóttir, sem sat nú í stjórnlagaráði og var þar ekki veigaminnsti meðlimurinn, ég get ekki séð að hún muni eiga mikið sameiginlegt með þeim hugmyndum sem til dæmis Sigurður Líndal hefur haft fram að færa.“ Þessi skoðanaágreiningur hefur komið fram opinberlega en þar hafa þau eldað grátt silfur saman, Freyja og Sigurður, sem lét hafa eftir sér að honum þætti margir, þar á meðal fatlað fólk, alltaf vera að leita að einhverju „til að andskotast í“. Og að hann væri orðinn „þreyttur á þessari mannréttindafrekju“. Freyja ritaði svargrein í júlí á síðasta ári til Sigurðar sem vakti mikla athygli. Og hefur Freyja á stundum notað þessi orð um sig í hálfkæringi.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sjá meira