Skapa vallarstemningu í Laugardalshöllinni Samúel Karl Ólason skrifar 8. nóvember 2013 12:03 Stuðningsmenn íslenska landsliðsins sem ekki eiga miða á landsleik Íslands og Króatíu munu geta horft á leikinn í Laugardalshöll.
Landsleikur Íslands og Króatíu þann 15. nóvember verður sýndur í beinni útsendingu í Laugardalshöll á risa skjám og bíótjöldum. Þar verður einnig upphitun fyrir leikinn. Bæði fyrir þá sem ætla á völlinn og þá sem ætla að horfa í Höllinni. „Fyrst og fremst er þetta ákveðið viðbragð við þeim feikilega áhuga sem er fyrir leiknum. Þessi hugmynd kom upp til að mæta þeirri ósk fólks að horfa, í miklum fjölda, saman á leikinn og að hafa það í kappleikja umhverfi,“ segir Jón Kaldal formaður Þróttar. „Ég tel að klárlega sé mikill áhugi fyrir þessum leik, enda stærsti leikur í sögu íslenskrar knattspyrnu. Það gæti orðið hrikalega skemmtilegt, að stór hópur fólks mæti þarna og horfi saman á leikinn. Þetta gæti orðið mikil stemning.“ Miðasala í Höllina hefst klukkan 16:00 á laugardaginn á Miði.is. Miðinn kostar 1.500 krónur fyrir fullorðna og 1.000 fyrir börn. Ekkert kostar fyrir þá sem eiga miða á leikinn að taka þátt í upphituninni. Fyrir síðustu heimaleiki íslenska landsliðsins hafa Köttarar, stuðningsmenn Þróttar, haldið upphitun og töflufundi í anddyri Laugardalshallarinnar. „Þar hefur verið hörkustemning og þá hafa hópar stuðningsmanna hitað upp áður en þeir fara á völlinn. Núna verður þetta eins, hitað upp í anddyrinu og svo munu þeir sem eiga miða fara á völlinn og aðrir horfa á hann í Höllinni í félagsskap annarra áhugmanna.“ „Við erum að búa til stemningu eins og væri að fara á völlinn. Menn munu hita upp saman og vera í merktum klæðnaði og með trefla og í góðum gír. Bæði þeir sem ætla að horfa á hann í beinni og þeir sem fara á völlinn.“ Upphitunin hefst klukkan 16:00 í anddyri Laugadalshallar og þétt dagskrá verður í boði frá 17:30.
Mest lesið Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Fleiri fréttir Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Sjá meira