Almennt góð uppgjör hjá stærstu félögunum Samúel Karl Ólason skrifar 8. nóvember 2013 15:25 Hagfræðideild Landsbankans, Hagsjá, tók saman helstu atriði úr uppgjörum fjögurra félaga. Mynd/GVA
Hagsjá, Hagfræðideild Landsbankans segir frá því að þau fjögur félög, af þeim níu sem mynda OMX vísitöluna, hafi birt góð uppgjör á þriðja ársfjórðungi. Félögin fjögur, Marel, Össur, Hagar og Icelandair hafa samanlagt markaðsvirði að fjárhæð 316 milljarða króna og mynda 72% af heildarvirði félaga á OMX. Næsta mánudag mun birta uppgjör á mánudaginn. Vís, TM og Eimskip vikuna þar á eftir og Reginn síðustu vikuna í nóvember. Tekjur Marel á fyrstu níu mánuðum ársins námu 493 milljónum Evra sem er 7,9% lægra en á sama tímabili 2012. Þrátt fyrir minni tekjur en búist var við tóku framlegðartölur góðan kipp upp á við eftir tvo dapra fjórðunga. Tekjur félagsins hafa farið samfleytt lækkandi síðan mitt ár 2012. Afkoma félagsins hefur lækkað enn meira og var rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði 25% lægri á fyrstu 9 mánuðum ársins 2013 miðað við sama tímabil 2012. „Stjórnendur hafa skýrt lækkandi tekjur með erfiðum markaðsaðstæðum þar sem framleiðendur hafa haldið að sér höndum varðandi fjárfestingar og verðsamkeppni sé mikil.“ Hagnaður Össurar á þriðja ársfjórðungi var 12,7 milljónir Bandaríkjadala samanborið við 9,9 milljónir á sama tímabili 2012. Tekjur jukust um 6,2 milljónir og rekstrarhagnaður félagsins fyrir afskriftir og fjármagnsliði nam 22,3 milljónum dala sem er aukning um 22%. „Stjórnendur hafa skýrt lækkandi tekjur með erfiðum markaðsaðstæðum þar sem framleiðendur hafa haldið að sér höndum varðandi fjárfestingar og verðsamkeppni sé mikil.“ Sökum þess að uppgjörsár Haga hefst 1. mars birti félagið uppgjör annars ársfjórðungs, júní, júlí og ágúst, þann 24. október. Hagnaður félagsins á tímabilinu nam 1,1 milljarði króna, en 926 milljónir á sama tímabili 2012. Á tímabilinu nam sala 19,4 milljörðum og jókst um 6,6% á milli ára. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði nam 1,7 milljörðum og hækkaði um 11,5%. „Afkoma Haga var í takt við væntingar en félagið hafði gefið út afkomuviðvörun þann 26.september. Bætta afkomu má þakka kostnaðaraðhaldi en á meðan heildartekjur á fyrstu 6 mánuðum árs 2013 hækkuðu um 6,9% frá sama tímabili 2012 þá hækkaði rekstrarkostnaður félagsins eingöngu um 1,8%.“ Uppgjör Icelandair var almennt yfir væntingum markaðarins, í tekjum og hagnaði. Tekjur á fjórðungnum námu 372 milljónum Bandaríkjadala sem er hækkun um 17,1%. Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði var 30,8% af tekjum félagsins en það var 29,2% á sama tímabili í fyrra. „Félagið er bjartsýnt á árið 2014 og bætir við þremur nýjum áfangastöðum og stefnir að 18% aukningu sætaframboðs, en til að anna þessu mun félagið bæta við þremur Boeing 757 vélum við flotann. Framleiðslu á þeirri vélartegund var hætt árið 2004 og til langs tíma mun flugfloti félagsins þurfa að taka breytingum sem veldur ákveðinni óvissu þegar kemur að fjárfestingaþörf félagsins, en félagið hefur nú þegar pantað 16 nýjar Boeing 737 vélar til afhendingar árið 2018-2021 Það er hinsvegar ljóst að viðskiptamódel og flugvélafloti félagsins virkar vel í dag og mun líklega til skamms tíma skila félaginu góðri afkomu ásamt væntum vexti í farþegaflutningum.“
Mest lesið Gleymdi að skrá sig úr stæðinu og því rukkuð um 48 þúsund Neytendur Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Viðskipti innlent Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Viðskipti innlent Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Viðskipti erlent Íbúðum í byggingu fækkar Viðskipti innlent Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Viðskipti innlent Um forvitna yfirmanninn Atvinnulíf Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Viðskipti innlent Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Viðskipti innlent Kaffi heldur áfram að hækka í verði Neytendur Fleiri fréttir Íbúðum í byggingu fækkar Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Atli Óskar ráðinn rekstrarstjóri framleiðslu Engin U-beygja hjá Play Veitingamenn verulega óánægðir með eftirlitið Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Spá umtalsverðum samdrætti í byggingu nýrra íbúða Falsaði fleiri bréf Veltir því upp hvort eigendum hafi verið refsað fyrir að tjá sig Hætta við yfirtökuna Harpa og Linda ráðnar forstöðumenn Stærsti samruninn í áraraðir á borð Samkeppniseftirlitsins Sylvía Kristín ráðin forstjóri Nova Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Farþegum til landsins fjölgaði um tuttugu prósent Kvika hafi grætt töluvert á því að hafna upphaflegum tilboðum „Sem betur fer eru aðrir fiskar í sjónum“ Arion og Kvika í samrunaviðræður Eyþór hættur sem framkvæmdastjóri Hopp Svona munu stækkuð Skógarböð og hótel líta út Skrautleg saga laganna hans Bubba Sætta sig ekki við höfnun Kviku Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Lofar bongóblíðu við langþráð langborð Minnstu sparisjóðirnir sameinast Sjá meira