Innlent

Lögreglan stöðvaði eins manns rímnapartí

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Það er ekki oft sem lögreglan er kölluð til út af kveðskap.
Það er ekki oft sem lögreglan er kölluð til út af kveðskap. Mynd/Stefán
„Það er ekki oft sem lögreglan er kölluð til út af kveðskap,“ segir á Facebook síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Sú hafi hins vegar verið raunin einn daginn og fóru tveir fílefldir lögreglumenn á vettvang, sem var fjölbýlishús á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglumennirnir töldu sig vera að sinna hefðbundnu hávaðaútkalli, en svo var alls ekki segir í tilkynningunni frá lögreglunni.

„Þegar á staðinn var komið fóru þeir inn í íbúð í húsinu, en hávaðaseggurinn var þar innandyra. Hljóðin úr íbúðinni fóru ekki framhjá nokkrum manni og runnu tvær grímur á laganna verði, sem eru samt ýmsu vanir. Þetta voru hljóð sem þeir heyra ekki á hverjum degi, og greinilegt að hér var ekki venjulegt partí í gangi. Reyndar var ekki neinn hefðbundinn gleðskapur í gangi, heldur bara einn maður að kveða rímur,“ segir í tilkynningunni.

Lögreglan segir að kvörtun nágrannanna hafi samt verið fyllilega skiljanleg.

„Þetta átti sér stað að næturlagi og maðurinn kvað rímur af miklum þrótti. Hann var því beðinn um að lækka róminn og eins að loka gluggum svona til öryggis. Við svo búið fóru lögreglumennirnir af vettvangi, og bárust ekki frekari kvartanir vegna þessa það sem eftir lifði nætur,“ segir lögreglan að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×