Veiðigjöld lækka um tæpa þrjá milljarða Samúel Karl Ólason skrifar 31. október 2013 13:15 Áætlað er að veiðigjöld muni hækka í þremur af fjórum landshlutum sem borguðu minnstan hluta veiðigjalda á síðasta fiskveiðiári. Veiðigjöld lækka í öllum öðrum landshlutum. Mynd/Egill Aðalsteinsson
Á síðasta fiskveiðiári 2012/2013 voru heildar veiðigjöld, bæði almennt og sérstakt 12.643 milljónir króna. Áætlað er að veiðigjöld muni skila 9.929 milljónum króna í ríkiskassann á núverandi fiskveiðiári, en það er lækkun um 2.714 milljónir. Þó er áætlað að lækkun sérstaks veiðigjalds vegna kaupa á aflaheimildum lækki um rúmar 1.500 milljónir króna á landsvísu. Stærstur hluti veiðigjaldanna kom, á síðasta fiskveiðiári, frá Reykjavík og voru það 3.265 milljónir króna. Næst mest kom frá Suðurlandi eða 2.783 milljónir króna. Frá Norðurlandi eystra komu 2.018 milljónir, 1.567 frá Austurlandi, 915 frá Reykjanesi, 723 frá Norðurlandi vestra, 573 frá Vesturlandi, 515 frá Vestfjörðum og 284 milljónir króna frá nágrenni Reykjavíkur. Heildarfjárhæð lækkana á sérstaka veiðigjaldinu vegna vaxtakostnaðar við kaup á aflahlutdeildum voru 1.300 milljónir á síðasta fiskveiðiári. Mest var lækkunin á Reykjanesi, 429 milljónir króna. Áætluð veiðigjöld fyrir yfirstandandi fiskveiðiár, 2013/2014, sé reiknað með því að óúthlutað aflamark í loðnu, makríl og fleiri stofnum verði í samræmi við áætlanir og landfræðileg úthlutun óbreytt, eru 9.929 milljónir króna. Heildarfjárhæð lækkunar sérstaks veiðigjalds vegna kaupa á aflaheimildum er áætlað 1.300 milljónir. Athygli vekur að samkvæmt áætlun munu veiðigjöldin hækka frá þremur landshlutum. Norðurlandi vestra, Vestfjörðum og Vesturlandi, en þeir landshlutar eru jafnvel með hlutfallslega mest af smáum útgerðum. Í sumar var talað um það á Alþingi að með breytingum á veiðigjaldi ætti að hlífa smáum og meðalstórum útgerðum og láta stærri útgerðir borga stærri hluta veiðigjalda. Þetta kemur fram í svari sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Kristjáns L. Möller varðandi veiðigjöld eftir sveitarfélögum. Í svarinu kemur þó fram að óeðlilegt væri að skipta álagningu veiðigjalds niður eftir sveitarfélögum, sökum þess að í smærri sveitarfélögum séu aðeins fáir aðilar í útgerð. Því var veiðigjöldum skipt niður á landshluta.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Fleiri fréttir Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Sjá meira