Hryntónlistarmenn til fárra fiska metnir Jakob Bjarnar skrifar 23. október 2013 11:34 Jakob Frímann við hljómborðið. Atfylgi stjórnvalda við hryntónlistarmenn er lítið og lélegt.
Jakob Frímann Magnússon, formaður Félags tónskálda og textahöfunda, segir að útflutnings- og þróunarsjóður upp á litlar 20 milljónir hafi fokið fyrir lítið í nýju fjárlagafrumvarpi. Jakob Frímann skrifar harðorða grein sem birtist í Fréttablaðinu í dag. Þar segir hann að hryntónlistarmenn; þeir sem fást við jazz, popp- og rokktónlist, megi búa við að vera lítilsvirtir og smáðir þó þeir dragi vagninn á margan hátt. Í grein hans kemur fram að Útflutnings- og þróunarsjóður hafi loks orðið til eftir mikla baráttu, sjóður sem ætlað var að styðja við bak tónlistarmanna sem þessa tónlist stunda, lofað hafi verið 150 milljónum í sjóðinn upphaflega, þegar til kom 2012 reyndust það 20 milljónir og þær fuku svo fyrir lítið í nýju fjárlagafrumvarpi. „Við ímyndum okkur að þetta hafi verið sjálfkrafa aðgerð í stærri útskriftarpakka tengdum skapandi greinum. Sjóðnum var mikið fagnað þegar tilkynnt var um hann á síðasta ári og við leyfum okkur að vonast til að þetta megi flokkast undir mistök, það að hann hafi verið þurrkaður út. Við vonum það,“ segir Jakob. Hlutur hryntónlistarmanna, sem Jakob nefnir svo, er rýr; lítil kaka af því sem þó fer til menningar og lista. „Þetta er annað skiptið í röð sem FTT mælir heildarframlög ríkis og sveitarfélaga til tónlistarlífs. Og hryntónlistin öll; jazz, rokk, popp, vísnatónlist, blús... er öll samanlög innan við 5 prósenta mörkin af heildarframlögum. Það þykir mörgum skjóta skökku við. Svipað hlutfall og var um miðja síðustu öld.“Þannig að ykkar hlutur er fremur rýr í því samhengi? „Í ljósi hins stóra samhengis, yfir 200 tónleika í mánuði hverjum, af íslenskum toga, með öllum tilheyrandi kostnaði, þá þætti þetta ekki sérlega veglegt atfylgi neins staðar annars staðar.“Og hin 95 prósentin liggja þá hvar? „Í öllu öðru skulum við segja. Öllu sem æðra getur talist,“ segir Jakob Frímann og ekki örgrannt um að í þessari síðustu setningu megi greina háðskan og jafnvel bitran tón.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Sjá meira