Innlent

Hæstiréttur sýknar af ákæru um barnaníð

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Hæstiréttur taldi framburð fórnarlambsins ekki eiga sér stoð í öðrum gögnum.
Hæstiréttur taldi framburð fórnarlambsins ekki eiga sér stoð í öðrum gögnum.

Ómar Traustason var í Hæstarétti í dag sýknaður af ákæru vegna nauðgunar með því að hafa neitt dreng sem þá var 14 til 15 ára, með ólögmætri nauðung til að hafa við sig munnmök þegar hann var sofandi og gat ekki spornað gegn kynmökunum. Þá var hann ákærður fyrir að fá drenginn til að fróa sér og reyna í eitt skiti að hafa endaþarmsmök við hann. Ómar var ákærður fyrir að hafa notfært sér yfirburðastöðu sína gagnvart drengnum vegna aldurs, reynslu og líkamlegra yfirburða og brotið gegn trúnaðarskyldu sinni gagnvart honum.

Ómar, sem er rúmlega fimmtugur, var sakfelldur í Héraðsdómi Reykjaness í mars á þessu ári, fyrir brotin og hlaut þar þriggja ára fangelsi.

Pilturinn hafði leitað til Ómars þegar fjölskylda hans varð húsnæðislaus. Pilturinn fékk húsaskjól hjá Ómari, bæði í Breiðholti og í Kópavogi, og mat og pening fyrir nesti í skólann, auk þess sem Ómar hélt að honum fíkniefnum.

Hæstiréttur sneri dómi héraðsdóms við í dag, en dómurinn taldi að þrátt fyrir að framburður fórnarlambsins hjá lögreglu og fyrir dómi hefði verið efnislega samhljóða og metinn trúverðugur í héraðsdómi, hefði framburðurinn ekki þá stoð, sem gera yrði kröfu um í sakamáli, í skýrslum annarra vitna eða hlutrænum sönnunargögnum.

Þá hefði Ómar staðfastlega neitað sök. Hæstiréttur taldi að ákæruvaldið hefði ekki axlað sönnunarbyrði samkvæmt lögum um meðferð sakamála fyrir því að Ómar hefði framið þau brot sem honum voru gefin að sök og var hann því sýknaður.

Ómar var dæmdur árið 1993 í tíu mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fjórum drengjum í Vestmannaeyjum, þar sem hann var þá búsettur.

Ómar var þá sakfelldur fyrir að hafa sýnt fjórum drengjum, níu til tólf ára gömlum, klámefni í fjögur aðskilin skipti, ýmist heima hjá sér eða í bíl, fróað sér fyrir framan þá, fitlað við tvo þeirra og tekið getnaðarlim eins þeirra í munn sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×