Lífið

Meistaramánuður: Vikan í myndum

Magnús Berg Magnússon skrifar
Nú þegar aðeins tæp vika er eftir af Meistaramánuði eru þátttakendur í óða önn við að reyna sigrast á markmiðunum áður en mánuðurinn er liðinn.

Innan um aragrúa mynda af misgirnilegum en bráðhollum mat má á kassmerkinu #meistaram á Instagram sjá myndir af fólki takast á við óvenjuleg markmið, fjallgöngur, hjólreiða- og hlaupatúra og glerharðar líkamsræktaræfingar.

Þúsundþjalasmiðurinn Halldór Halldórsson einsetti sér að læra að geirnegla og sýnir árangurinn á gramminu, þá má sjá veður- og hlaupastjörnuna Elísabetu Margeirsdóttur hlaupa upp fjallshlíð, fyrirsætuna Eddu Pétursdóttur í Thailenskum bardagaíþróttum, Unni úr Popp og Kók á toppi Esjunnar með föður sínum og N1 forstjóranum Eggerti Guðmundssyni og þá sýnir gifdrottningin Berglind Festival að það er vel hægt að drekka vatn á föstudagskvöldi.

Það er deginum ljósara að það er hrikalegur andi í þátttakendum Meistaramánaðar á lokasprettinum. 

Í næstu viku birtum við myndir frá síðustu viku Meistaramánaðar en þú getur merkt myndina þína með kassmerkinu #meistaram til að vera með. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×