Brýnt að samið verði við SÁÁ til lengri tíma 25. október 2013 15:58 Meðferðarheimiliði Vogur. Mynd/Einar
Ríkisendurskoðun telur brýnt að gerðir verði samningar við Samtök áhugamanna um áfengisvandamálið (SÁÁ) til lengri tíma. Þjónustusamningar ríkisins við SÁÁ gilda aðeins einn mánuð í senn. Mikilvægt sé að ganga frá samningum til lengri tíma til að samtökin geti uppfyllt ákvæði laga um opinber innkaup. SÁÁ veita áfengis- og vímuefnameðferð samkvæmt þjónustusamningum við ríkið. Á síðasta ári sömdu samtökin við fyrirtækið Bragðgott ehf. um að annast rekstur mötuneytis á sjúkrahúsinu Vogi og meðferðarheimilinu Vík. Reksturinn var ekki boðinn út eins og lög um opinber innkaup gera almennt ráð fyrir. SÁÁ fellur undir lögin þar sem starfsemi samtakanna er að stórum hluta fjármögnuð með almannafé. Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að SÁÁ töldu ekki ástæðu til að bjóða reksturinn út þar sem aðeins stóð til að umrætt fyrirtæki annaðist hann tímabundið til reynslu. Að auki töldu samtökin að ekki hefði verið nægur tími til að undirbúa útboð og að ferlið hefði valdið óvissu og getað haft slæm áhrif á starfsanda og skjólstæðinga. Ríkisendurskoðun hefur skilning á því að aðstæður SÁÁ hafi verið erfiðar þegar ákveðið var að ganga til samninga við Bragðgott ehf. Engu að síður telur stofnunin að lagaskilyrði til að víkja frá útboðsskyldu hafi ekki verið fyrir hendi. Eins og sakir standa gilda þjónustusamningar SÁÁ við ríkið einungis í einn mánuð í senn. Langtímasamningar hafa ekki verið í gildi frá árslokum 2011. Viðræður um nýja samninga hafa staðið yfir að undanförnu milli Sjúkratrygginga Íslands og SÁÁ en nokkuð ber enn í milli. Þá vinnur velferðarráðuneytið nú að stefnumótun um velferðarþjónustu, þ.m.t. þau verkefni sem samtökin sinna. Því má segja að nokkur óvissa ríki um rekstrarforsendur áfengis- og vímuefnameðferðar á vegum samtakanna. Að mati Ríkisendurskoðunar er erfitt fyrir SÁÁ að uppfylla ákvæði laga um opinber innkaup meðan þessi staða er uppi. Ríkisendurskoðun hvetur velferðarráðuneytið til að ljúka stefnumótun um velferðarþjónustu eins fljótt og verða má og ákveða hvaða þjónusta verði keypt af SÁÁ. Jafnframt hvetur stofnunin Sjúkratryggingar Íslands til að ganga frá langtímasamningum við SÁÁ hið fyrsta. Loks telur stofnunin að SÁÁ eigi að bjóða út rekstur mötuneytis um leið og nýir samningar liggja fyrir.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Sjá meira