Ekkert hæft í kjaftasögunum: Sigmundur á ekki barn í lausaleik Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 27. október 2013 12:57 Sigmundur segir kjaftasögurnar oft erfiðari fyrir fjölskyldur stjórnmálamanna heldur en stjórnmálamanninn sjálfan. Mynd/Samsett mynd
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir kjaftasögurnar komnar í nýjar hæðir í samtali við Sigurjón M. Egilsson í Sprengisandi í morgun. „Ekki bara ég. Ráðherrar síðustu ríkisstjórnar fengu að finna fyrir því og aðrir þingmenn. Menn nýti þetta sem tæki í pólitísku baráttunni.“ Hann fjallaði um sögusagnir þess efnis að hann hefði átt barn í lausaleik. „Það er ekki langt síðan það var hringt inn á að minnsta kosti nokkrar fréttastofur, jafnvel allar, ítrekað, til þess að reyna að dreifa sögu um það að ég ætti von á barni með einhverri konu annarri en konunni minni,“ sagði Sigmundur. Hann sagði að hamast hefði verið í sögunni á tímabili en að auðvitað væri ekkert hæft í henni. „Svo er þessi saga byrjuð að dúkka upp aftur og búið að skipa í hlutverk konunnar. Ég hef reyndar heyrt nokkrar útgáfur af því.“ Sigmundur fjallaði einnig ítarlega um þá gagnrýni sem hann fékk þegar hann tók sér frí í mánuðinum. Sigurjón M. Egilsson, stjórnandi þáttarins, spurði hvort forsætisráðherrann væri bitur yfir umræðunni en Sigmundur þvertók fyrir það. „Það sem fer í taugarnar á mér er að það skuli vera tíma eytt í þessa vitleysu. Að stjórnmálaumræðan skuli alltaf snúast um svona brellur og svona endemis rugl.“ Sigmundur sagði jafnframt að mögulega væri hörð gagnrýni á Framsóknarflokkinn að undanförnu afleiðing stöðu hans á miðjunni. „Eftir síðustu kosningar þar sem að Framsóknarflokkurinn vinnur mikinn sigur, þá eru sumir sem eru vinstra megin við hann og kannski hægra megin líka, sem eru ósáttir við það, finnst þetta ekki hafa verið rétt niðurstaða. Sú gremja beinist því fyrir vikið mikið að Framsóknarflokknum.“
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Fleiri fréttir Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Sjá meira