Munro mun mælast vel fyrir Jakob Bjarnar skrifar 10. október 2013 12:37 Alice Munro. Illugi telur það hafa skipt Nóbelsnefndina verulegu máli við valið sú staðreynd, sem blasir jú við, að Alice er kona.
Kanadíska skáldkonan Alice Munro (f. 1931) hlýtur Nóbelsverðlaunin í bókmenntum í ár; þrettánda konan til að hljóta þessi verðlaun og fyrsti Kanadamaðurinn. Illugi Jökulsson telur að val nefndarinnar muni mælast vel fyrir. Alice Ann Munro er kanadískur rithöfundur, fædd árið 1931. Hún er nokkuð þekktur höfundur, hún fékk Man Booker International Prize árið 2009 fyrir æfistarfið og hefur unnið í þrígang Canada´s Governor General´s verðlaunin og nú er það Nóbelinn. Illugi Jökulsson, sem lengi hefur fylgst með þessum verðlaunum, segir þetta ekki koma mjög á óvart. „Í raun og veru ekki. Hún hefur verið nefnd í mörg ár, þessi kona. Ég hugsa að þetta val muni mælast vel fyrir. Hún skrifar fremur langar smásögur sem margar þykja ígildi langra skáldsagna af dýpt og innihaldi. Já, ég hugsa að almennt muni menn telja að þarna hafi Nóbels-nefndinni tekist vel upp. Þá er það orðið sjaldgæft hin síðari ár að vinsældir höfundur hljóti verðlaunin en hún hefur sannarlega notið vinsælda, í það minnsta í hinum enskumælandi heimi.“ Illugi segir það farið að skipta nefndina máli að um konu ræðir. „Já, það er búið að veita þessi ferðlaun síðan 1901 og ég held að Munro sé 13. konan sem fengið hefur þessi verðlaun á þessum 110 árum eða rúmlega svo. Þau í Nóbelsnefndinni eru farin að velta þessu fyrir sér. Komin eru fjögur ár síðan kona hlaut verðlaunin síðast þannig að nokkuð fyrirsjáanlegt var að það gæti orðið kona núna.“ Kandídat Illuga er Bob Dylan en hann þarf að bíða enn um sinn; aðdáendur hans verða enn að vona að hans tími komi. Illugi segist varla vita hvort þessi verðlaun skipti miklu máli, svona í stóra samhenginu. „Þau skipta verulegu máli fyrir viðkomandi höfund því hann fær fullt af pening. Þetta eru rúmlega 150 milljónir íslenskra króna, sem verðlaunin nema. Hann fær viðurkenningu og klapp á bakið en til lengri tíma held ég að þetta skipti ekki miklu máli fyrir orðstír höfunda. Þetta gleymist fljótt. Manst þú til dæmis hver hlaut verðlaunin í fyrra?“ Blaðamaður kýs að benda viðmælanda sínum vinsamlegast á að það er hann sem spyr spurninganna. En, gaman er að geta þess að Munro er eftirlætishöfundur eins helsta smásagnahöfundar Íslands núlifandi; Ágústs Borgþórs Sverrissonar.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Fleiri fréttir SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Jafnréttisstofa sver af sér ábyrgð Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Sjá meira