„Blessunarlega var enginn heima“ Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 10. október 2013 14:08 Sólveig og fjölskylda eru búin að setja reykskynjarann afur í samband.
Sólveig Arnarsdóttir, leikkona, býr við Urðarstíg rétt við húsið sem kviknaði í fyrir stundu. Þau hjónin voru heima þegar slökkviliðið mætti á staðinn. „Það fer nú ekki framhjá manni þegar 3 sjúkrabílar, 3 slökkviliðsbílar og 2 lögreglubílar mæta í þessa litlu götu. Allir nágrannarnir fóru út en svo virtist sem slökkvliðið næði nokkuð fljótt að ráða niðurlögum eldsins,“ sagði Sólveig í samtali við Vísi. Sólveig segir það eina sem hafi skipt þau máli hafi verið að athuga hvort einhver væri staddur inni í húsinu. Maður Sólveigar hafði gengið framhjá húsinu aðeins korteri áður en slökkviliðið mætti á svæðið, en þá var hvorki nokkurn reyk né eld að sjá. „Þetta virðist hafa gerst virkilega hratt. Blessunarlega var enginn heima, nema litli kötturinn. Sjúkraliðarnir tóku strax til við að hlúa að honum og gengu vasklega til verks. Vonandi tókst að bjarga honum,“ segir Sólveig. Sólveig segir um að ræða litla götu og svolítið eins og að búa í litlu þorpi að búa við Urðarstíginn. „Við erum líka virkilega fegin að húsið hafi ekki hafa brunnið alveg niður til grunna þó það sé líklega illa skemmt. Svona timburhús fuðra náttúrulega fljótt upp. Við fjölskyldan höfðum einmitt aftengt reykskynjarann í síðustu viku af því hann var að trufla okkur við eldamennsku. Við settum hann beint aftur í samband núna, svona lagað er góð áminning um að hafa allt slíkt á hreinu.“
Mest lesið Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Innlent Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Innlent „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Innlent Verðhækkanirnar vonbrigði Innlent Erfitt fyrir launafólk að taka aftur mark á loforðum stjórnvalda og fyrirtækja Innlent Hrafnagilshverfi stækkar ört Innlent Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Innlent Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Innlent „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Innlent Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Innlent Fleiri fréttir „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Erfitt fyrir launafólk að taka aftur mark á loforðum stjórnvalda og fyrirtækja Hrafnagilshverfi stækkar ört Verðhækkanirnar vonbrigði Fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Baðlón sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Sjá meira