Dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn 14 ára stúlku Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 1. október 2013 17:28 Mynd frá Héraðsdómi Austurlands. mynd/365Tvítugur karlmaður var í dag dæmdur í Héraðsdómi Austurlands í eins árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn barni. Maðurinn sem var 19 ára þegar brotið átti sér stað, hafði ekki áður gerst brotlegur við refsilög áður. Brotið átti sér stað í ágúst í
Tvítugur karlmaður var í dag dæmdur í Héraðsdómi Austurlands í eins árs skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn barni. Maðurinn sem var 19 ára þegar brotið átti sér stað, hafði ekki áður gerst brotlegur við refsilög áður. Brotið átti sér stað í ágúst í fyrra en þá var stúlkan sem hann braut gegn 14 ára. Maðurinn játaði við þingfestingu málsins en hafnaði bótakröfu. Af hálfu ákærða var á það bent fyrir dóminum að annað sakamál væri rekið, þar sem annar maður sé ákærður fyrir samskonar brot gegn sömu stúlku. Það brot átti sér stað fáeinum dögum eftir brot ákærða. Hann benti einnig á að engin sérfræðileg gögn lægju fyrir sem styddu það að stúlkan hefði orðið fyrir tjóni af völdum ákærða. Í dóminum segir að ljóst sé að brot af þeim toga sem ákærði væri skakfelldur fyrir væru almennt til þess fallin að valda þeim sem fyrir yrðu margvíslegum sálrænum erfiðleikum. Brot ákærða hefðu meðal annars falið í sér ólögmæta meingerð í garð brotaþola. Þar segir einnig að í lögunum er fortakslaust bann við samræði og öðrum kynferðismökum við börn undir 15 ára aldri. Það er sett í lögin til verndar börnum og ungmennum af tilliti til þroska þeirra. Í dóminum segir að í ljósi hreinskilnislegrar játningar ákærða frá upphafi rannsóknar málsins og þess sem fram kemur í rannsóknargögnum um atvik máls að öðru leyti þyki refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í eitt ár. Lágmarksrefsing við brotinu er eins árs fangelsi og hámarksrefsins er 16 ár. Í lögunum er heimild til þess færa refsingu niður fyrir lögbundið lágmark ef gerandi og þolandi eru á svipuðum aldri og þroskastigi. Aldursmunur með ákærða og brotaþola þótti ekki slíkur að að skilyrði væru til þess að beita þeirri heimild.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Sjá meira