Óttast ekki að hótelin standi auð Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 3. október 2013 19:13
Hótelum í Reykjavík mun fjölga um meira þriðjung á næstu fimm árum. Skrifstofustjóri eignaþróunar hjá Reykjavíkurborg óttast ekki að hótelherbergin eigi eftir að standa auð. Samkvæmt nýjustu tölum Hagstofunnar eru í dag 35 hótel með 3.000 herbergjum og 6.300 rúmum í Reykjavík. Verði árleg fjölgun ferðamanna á bilinu 5-7% eins og spár gera ráð fyrir þarf um 180-380 ný herbergi á gististöðum árlega.Framkævmdir eru að hefjast, eða eru hafnar, við sjö stór hótelverkefni í miðborginni með tæplega 1.100 herbergjum sem verða tilbúin á næstu fimm árum. 343 herbergi verða við Höfðatorg, 250 við Hörpu, 159 í gamla Landsímahúsinu, 142 á Hljómalindarreitnum 100 á Hverfisgötu við gamla Nexushúsið og 43 ný hótelherbergi bætast við á Hótel Borg. Byggingarkostnaður við eitt hótelherbergi er rúmlega 20 milljónir. Í deiglunni er því fjárfesting í ferðaþjónustu í Reykjavík fyrir 22 millljarða. „Samkvæmt þeim spám sem að fyrir liggja aum aukningu í ferðamennsku er vissulega þörf á þessum hótelherbergjum. Og þessar spár eru jafnvel hófsamar þar sem það hefur sýnt sig árið í fyrra var yfir þessum spám og árið í ár stefnir hratt í að verða stærsta ferðamannaárið frá upphafi. Við teljum mjög mikilvægt að þessari hóteluppbyggingu verði stýrt þannig að hótelin verði á góðum stöðum. Ekki alltof mikið af gistirými inní íbúðahverfum svo þau ýti íbúunum í burtu. Það er vandasamt að tryggja þetta jafnvægi,“ segir Hrólfur Jónsson, skrifstofustjóri eignaþróunar hjá Reykjavíkurborg. Hann ótttast ekki að spárnar standist ekki og hótelin endi auð. "Það er eitthvað sem við stöndum frammi fyrir í öllum rekstri að ef að kúnarnir koma ekki þarf að bregðast við með einhverjum hætti. Hótel eru auðvitað mjög sérhæfðar byggingar en það mætti hugsanlega breyta þeim svo hægt sé að nýta þau í annað," segir Hrólfur.
Mest lesið Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Innlent Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Innlent „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Innlent Verðhækkanirnar vonbrigði Innlent Erfitt fyrir launafólk að taka aftur mark á loforðum stjórnvalda og fyrirtækja Innlent Hrafnagilshverfi stækkar ört Innlent Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Innlent Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Innlent „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Innlent Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Innlent Fleiri fréttir „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Erfitt fyrir launafólk að taka aftur mark á loforðum stjórnvalda og fyrirtækja Hrafnagilshverfi stækkar ört Verðhækkanirnar vonbrigði Fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Baðlón sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Sjá meira