Innlent

Árni Páll fundar með ráðamönnum ESB

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, mun eiga fundi með ráðamönnum Evrópusambandsins í Strassborg.
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, mun eiga fundi með ráðamönnum Evrópusambandsins í Strassborg. Mynd/Valgarður
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, er á leið til Strassborgar í Frakklandi þar sem hann mun eiga fundi með ráðamönnum Evrópusambandsins í boði þingflokks jafnaðarmanna á Evrópuþinginu. Í þingflokki jafnaðarmanna á Evrópuþinginu sitja 194 þingmenn frá öllum 28 aðildarríkjum ESB.

Árni Páll mun jafnframt hitta leiðandi þingmenn á Evrópuþinginu úr öllum flokkum. Hann mun funda sérstaklega með Hannes Swoboda, formanni þingflokks jafnaðarmanna, og Christian Dan Preda, sem leitt hefur vinnu við aðildarumsókn Íslands.

Þá mun hann eiga sérstakan fund með Stefan Füle, stækkunarstjóra ESB og Maria Damanaki, sem fer með fiskveiðimál í framkvæmdastjórninni. Annað kvöld ávarpar formaður Samfylkingarinnar þingflokk jafnaðarmanna á sérstökum þingflokksfundi og fjallar um Evrópusamvinnuna frá sjónarhóli Samfylkingarinnar og stöðu aðildarumsóknar Íslands að ESB.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×