Einar að fá lyktarskynið á ný Jón Júlíus Karlsson skrifar 7. október 2013 15:38 Einar Skúlason er að fá lyktarskynið á ný. Mynd/GVA
Einar Skúlason, frumkvöðull og fyrrverandi frambjóðandi Framsóknar, þarf að skipta um tetegund sem hefur verið í uppáhaldi hjá honum síðastliðin tvö ár. Ástæðan er sú að hann fann í fyrsta sinn lykt eftir fimm ára hlé og lyktin af teinu var ekki að heilla hann. „Allt í einu fann ég lyktina af teinu sem hefur verið í uppáhaldi hjá mér undanfarin tvö ár. Lyktin eyðilagði þetta alveg fyrir mér og ég þarf að finna mér nýtt te,“ segir Einar í samtali við Vísi. Einar er ánægður með að vera farinn að finna lykt á ný. Hann fór á ný lyf fyrir skömmu til að minnka bólgur í nefholi sem hafa komið í veg fyrir að lyktarskyn hans virki með eðlilegum hætti. „Ég er búinn að finna þrjár lyktartegundir í dag þannig að þetta er á réttri leið,“ segir Einar. „Ég fór loksins til læknis vegna þessa vandamáls en var búinn að prófa olíur og nálastungumeðferð. Þetta er að koma hægt og rólega. Ég var búinn að ýta því undan mér að fara til læknis og hélt að þetta myndi lagast að sjálfu sér. Þetta er það skynfæri sem maður getur helst lifað án. Viðbrögðin hjá mér hefðu verið öðruvísi ef þetta hefði verið sjón, heyrn eða bragðskyn.“Synirnir vakta ísskápinn Einar hefur óhikað leitað aðstoðar hjá sonum sínum vegna skorts á lyktarskyni á síðustu árum. „Ég hef aðallega fengið þá til að kíkja inn í ísskáp. Þeir þefa fyrir mig hvort það sé eitthvað að skemmast,“ segir Einar og hlær. „Þeir hafa reynst mér vel og hjálpað mér í gegnum þetta.“ Einar er á leið í knattspyrnu með félögum sínum í kvöld og vonast til að þefa uppi fleiri marktækifæri. „Það væri óskandi. Ég er búinn að vera fara ansi illa með færin að undanförnu og á inni að skora nokkur mörk. Stemmningin í klefanum eftir æfingu gæti hins vegar orðið svolítið öðruvísi þar sem ég hef ekki fundið svitalykt í mörg ár. Það verður spennandi að sjá hvernig lyktarskynið bregst við því.“
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Innlent Fleiri fréttir SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Jafnréttisstofa sver af sér ábyrgð Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Sjá meira