Lögreglan braut lög um persónuvernd Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 7. október 2013 17:59 Í bréfi frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu til Persónuverndar frá 30. apríl kemur fram að umræddur starfsmaður geri sér grein fyrir mistökum sínum og hafi óskað eftir að koma á framfæri afsökunarbeiðni til þolanda vegna þess. mynd/anton
Starfsmaður tilkynningar- og boðunardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu braut lög þegar hann greindi ættingja einstaklings frá kynferðisofbeldi sem hann hafði orðið fyrir.Í úrskurði Persónuverndar kemur fram að embættið hafi staðfest tilvikin sem lögmaður brotaþola kvartaði undan en starfsmaðurinn greindi ættingjanum frá ofbeldinu í tveimur símtölum og braut við það lög um persónuvernd. Telur þolandi að upplýsingarnar hafi verið eins viðkvæmar og þær gátu verið. Í bréfi frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu til Persónuverndar frá 30. apríl kemur fram að umræddur starfsmaður geri sér grein fyrir mistökum sínum og hafi óskað eftir að koma á framfæri afsökunarbeiðni til þolanda vegna þess. Samkvæmt lögum hvílir þagnarskylda á lögreglumönnum og öðru starfsliði lögreglu um þau atvik sem þeim verða kunn í starfi sínu eða vegna starfs síns og leynt eiga að fara vegna lögmætra almanna- eða einkahagsmuna. Samkæmt úrskurði Persónuverndar liggur fyrir að í umræddum símtölum hafi verið veittar upplýsingar um mál í tilefni af kæru kvartanda sem féllu undir fyrrnefnda þagnarskyldu samkvæmt framangreindu. Fyrir 1. desember skal lögreglan á höfuðborgarsvæðinu upplýsa Persónuvernd um til hvaða ráðstafana hún hafi þá gripið til að girða fyrir að slík öryggisatvik og hér um ræðir endurtaki sig.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Fleiri fréttir SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Jafnréttisstofa sver af sér ábyrgð Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Sjá meira