Siðmennt fær sóknargjöld sem söfnuður sé Jakob Bjarnar skrifar 8. október 2013 12:02 Séra Vigfús Þór segir að gripið hafi verið til sársaukafullra aðhaldsaðgerða --þrír kórar verið lagðir niður.
Kirkjan er í miklum fjárhagskröggum en Fréttablaðið greindi frá því í morgun að sóknir á suðvesturhorninu skuldi yfir þrjá milljarða. Séra Vigfús Þór Árnason er sóknarprestur í stærstu sókninni og þeirri sem mest skuldar. Samtals nema skuldir 36 sókna á suðvesturhorninu rétt yfir þremur milljörðum króna. Grafarvogskirkja er fjölmennasta sóknin, telur vel yfir 18 þúsund sóknarbörn. Hún skuldar líka mest en séra Vigfús segir hana á móti best í stakk búna til að greiða skuldir sínar. „Söfnuðurinn er stór og við skuldum þó nokkuð, en vegna stærðarinnar, með hundrað milljón króna tekjur á ári, þá stöndum við alltaf í skilum.“ Séra Vigfús segir kirkjuna vilja greiða skuldirnar hraðar niður, skuldir sem eru vegna kirkjubygginga. Staðan er vissulega áhyggjuefni. „Jú, sko... það er alvarlegt þetta sem kom fram frá innanríkisráðuneytinu, síðustu ríkisstjórn, að það hafði verið skorið 25 prósent meira niður hjá kirkjunni en hjá stofnunum sem tengjast innanríkisráðuneytinu í allri kreppunni.En er þetta ekki vatn á myllu þeirra sem vilja aðskilnað ríkis og kirkju? „Ég veit það nú ekki, sko. Nú fá allir söfnuðir þessi sömu gjöld, hvort sem það er Siðmennt, Hvítasunnusöfnuður ... allir fá sömu gjöldin. Sóknargjöldin eru greidd til allra, meira að segja kom Siðmennt nú inn sem söfnuður.“ Séra Vigfús leggur áherslu á að þetta sé ekki framlag ríkisins heldur byggir þetta á framlagi einstaklinga, 700 krónum á mann á mánuði og svo hefur verið lengi. En ríkið setti stopp á það fyrir um sex árum síðar. Allar kirkjur byggja sinn rekstargrundvöll á umsaminni hækkun sóknargjalda sem á að fylgja vísitölu og eðlilegum verðlagshækkunum. „Við erum að vona að innanríkisráðuneytið geri samning þar sem sóknargjöldin muni ná vægi sínu á einhverjum tveimur til þremur árum. Og að hætt verði að skera kirkjuna eins og gert hefur verið.“ Sóknarpresturinn í Grafarvogi segir að gripið hafi verið til allskonar aðhaldsaðgerða og þannig hafi þrír kórar verið lagðir niður í sparnaðarskyni en þó hafi verið reynt að blása til sóknar því kórfrömuðurinn Margrét Pálmadóttir er nú að stýra stúlknakór á vegum kirkjunnar.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Fleiri fréttir SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Jafnréttisstofa sver af sér ábyrgð Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Sjá meira