„Framkvæmdarlegt atriði“ Hjörtur Hjartarson skrifar 8. október 2013 18:54 Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis.
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, efast ekki um lögmæti þess að skattleggja þrotabú föllnu bankanna. Fyrirtækin falli skýrt undir þá skilgreiningu að vera fjármálafyrirtæki. Í fjárlögum næstar árs var samþykkt að fella úr gildi undanþágu fyrir fyrirtæki í slitameðferð um að á þau féllu ekki sérstakur bankaskattur. Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis sagðist í kvöldfréttum RÚV í gærkvöld að hún efaðist um þessarar skattlagningar. Fyrir það fyrsta væru þrotabúin ekki fjármálafyrirtæki og í öðru lagi væri skattstofninn óljós. „Nei, þetta eru fjármálafyrirtæki í slitameðferð. Þau eru ekki eins og önnur fjármálafyrirtæki en fram til þessa hafa fjármálafyrirtæki í slitameðferð verið sérstaklega undanþegin með grein í lögunum, þannig að það virðist sem hugsunin hafi verið sú að án þeirrar sérstakar undanþágu þá myndi skatturinn leggjast á slík fjármálafyrirtæki,“ segir Bjarni og bætir við að skattstofninn ætti heldur ekki að flækja málin. „Skattstofninn á að vera svo óljós. Væntanlega er þar verið að vísa til þess að liggi endanlega fyrir hvaða kröfur eru samþykktar í búin en það væri þá hægt að miða við samþykktar kröfur og það liggur alveg fyrir hverjar þær eru. Að öðru leyti er þetta svona framkvæmdarlegt atriði. Ég hef ekki miklar áhyggjur af því.“ Reiknað er með að þessi skattur muni færa ríkissjóði 11,3 milljarða á næsta ári. Bjarni telur ekki að hætta sé á að skattlagningin brjóti í bága við stjórnarskrá Íslands. „Nei, ég sé það nú ekki. Við erum að tala hérna um brot úr prósenti af skuldunum. Heildareignir þessara þrotabúa, þetta eru fjármálafyrirtæki í slitameðferð eru einhversstaðar á bilinu 2500 til 3000 milljarðar. Heildarskattlagningin mun frá þessum aðilum nema svona um 11 milljörðum af þessum rúmum 2500 milljörðum. Það er engin einasta leið að tala um einhverja eignaupptöku í þessu samhengi,“ segir Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra.
Mest lesið „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Erlent Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Innlent „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Erlent Fagnað á götum Kabúl Erlent Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Erlent Mundaði stólinn og lamdi gesti Innlent Fleiri fréttir Fortíð og framtíð Íslands í Evrópu á Sprengisandi Mundaði stólinn og lamdi gesti „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Velti allt á því hverjir mæti á kjörstað Allt hnífjafnt í nýjum þjóðarpúlsi og reynt aftur við Lagarfljót Hringvegurinn lokaður í gegnum Borgarnes annað kvöld Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Leituðu manns sem átti að vera vopnaður rafbyssu Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina „Klukkan tifar“ Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Enginn marktækur munur á jáurum og neiurum ESB-barátta, hiti meðal kennara og vændisskilti í Suðursveit Forsetahjónin halda til Eistlands Ökumaður á sjúkrahús eftir slys á Fljótsheiði Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Sjá meira