Páll Matthíasson skipaður forstjóri Landspítalans Jakob Bjarnar skrifar 30. september 2013 10:43 Páll hefur starfað sem framkvæmdastjóri geðsviðs Landspítalans og setið í framkvæmdastjórn spítalans og þar af einn af staðgenglum forstjóra. Mynd/Vilhelm
Páll Matthíasson geðlæknir hefur verið skipaður forstjóri Landspítalans í stað Björns Zoega sem sagði starfi sínu lausu í síðustu viku. Páll hefur starfað sem framkvæmdastjóri geðsviðs Landspítalans og setið í framkvæmdastjórn spítalans og þar af einn af staðgenglum forstjóra.Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra fundaði með framkvæmdastjórn Landspítalans í morgun þar sem hann tilkynnti ráðninguna. Páll er fæddur árið 1966 í Reykjavík, lauk læknaprófi frá Háskóla Íslands með ágætiseinkunn árið 1994 og vann kandídatsár sitt á Landspítalanum. Páll var deildarlæknir á lyflækningasviði og geðsviði Landspítala og starfaði einnig í héraði. Frá 1997-2007 starfaði Páll í Lundúnum, fyrst við framhaldsnám í geðlækningum og síðar sem sérfræðingur og yfirlæknir á stofnunum innan opinbera heilbrigðiskerfisins og hins einkarekna. Páll var sérfræðingur á South London& Maudsley NHS Trust, yfirlæknir á Oxleas NHS Trust og yfirlæknir á Huntercombe Roehampton Hospital. Páll vann að uppbyggingu nýrrar spítalaþjónustu og breytingastjórnun tengdum þeim og hefur sérstaklega beint sjónum að áhrifaþáttum starfsánægju. Árið 2006 lauk Páll doktorsprófi frá Geðfræðastofnun Lundúnaháskóla. Hann er klínískur dósent við læknadeild Háskóla Íslands. Frá 2007 hefur Páll starfað á Landspítala, fyrst sem yfirlæknir og frá 1. maí 2009, ráðinn til 5 ára, sem framkvæmdastjóri Geðsviðs með setu í framkvæmdastjórn spítalans og einn af staðgenglum forstjóra.
Mest lesið Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Erlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Innlent Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Innlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent Fleiri fréttir Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Sjá meira