Innlent

Miðaldra bruggari tekinn

Kristján Hjálmarsson skrifar
34 lítrar af gambra voru gerðir upptækir.
34 lítrar af gambra voru gerðir upptækir.
Lögreglan á Suðurnesjum handtók í fyrradag  karlmann á sextugsaldri, sem bruggaði áfengi í húsnæði í umdæminu.

Bruggunin var í fullum gangi þegar lögreglumenn bar að garði. Upptækir voru gerðir 34 lítrar af gambra og áhöld til bruggunar.

Maðurinn var færður á lögreglustöð til skýrslutöku og sleppt að henni lokinni. Gambranum var fargað, sem og áhöldunum, að því er segir í tilkynningu frá lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×