Innlent

Oddviti Sjálfstæðisflokks vill kosningar um Reykjavíkurflugvöll

Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík vill að kosið verði um framtíð Reykjavíkurflugvallar samhliða borgarstjórnarkosningum í vor.

Flokkarnir í Reykjavík leggja nú línurnar fyrir kosningabaráttuna í vor. Oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík segir Reykjavíkurflugvöll helsta kosningamálið í ár enda er framtíð hans í höndum næstu borgarstjórnar.

Samkvæmt gildandi skipulagi verður tveimur af þremur flugbrautum Reykjavíkurflugvallar lokað árið 2016 eða um mitt næsta kjörtímabil.

Tæplega sjötíu þúsund manns hafa mótmælt þessum áformum en Jón Gnarr borgarstjóri tók við undirskriftunum í gær. Þar af koma rúmlega tuttugu þúsund undirskriftir frá borgarbúum.

„Augljóslega verður flugvöllurinn mikið kosningamál. Annað er útilokað. Framtíð Reykjavíkurflugvallar verður ákveðin af næstu borgarstjórn,“ segir Júlíus Vífill Ingvarsson, oddviti Sjálfstæðisflokks í Reykjavík.

Í landsfundarsamþykkt Sjálfstæðisflokksins er ítrekað að flugvellinum skuli tryggð áframhaldandi aðstaða í Vatnsmýrinni.

Sp.blm. Komist Sjálfstæðisflokkurinn til valda í Reykjavíkurborg verður flugvöllurinn áfram?

„Það hlýtur að vera verkefni þeirrar borgarstjórnar sem tekur við næsta vor að breyta því aðalskipulagi sem nú hefur verið auglýst.“

Þá ítrekar Júlíus Vífill að með afhendingu undirskriftasöfnunarinnar, sem er sú fjölmennasta frá upphafi, sé tilefni til að setja málið í kosningu og bendir á að sú kosning gæti farið fram samhliða borgarstjórnarkosningum.

„Samkvæmt sveitarstjórnarlögum ber sveitarfélagi að efna til kosninga ef 20 prósent kosningabærra íbúa óskar þess. [Í undirskriftarsöfnuninni innsk. blaðamanns] skila miklu fleiri en 20 prósent Reykvíkinga undirskriftum af þessu tagi. Að láta eins og að það skipti engu máli er alveg ótrúlegt.“

Sp.blm. Þannig að þú hvetur borgarstjórn og borgarstjóra til að taka þetta til skoðunar?

„Þegar borgarstjórn fær skilaboð með þessum hætti, sem á sér ekkert fordæmi, þá verður auðvitað að staldra við og stöðva þá stefnu sem þarna hefur verið sett fram í aðalskipulagi og byrja að sumu leiti upp á nýtt, það er í raun óumflýjanlegt.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×