Jón Gnarr segir föður sinn hafa goldið fyrir að vera ekki sjálfstæðismaður Elimar Hauksson skrifar 21. september 2013 21:30 Segir faðir sinn hafa hlotið lítinn frama hjá lögreglunni þótt hann væri bæði vandvirkur og duglegur. Það að hann var "kommi“ hafi haft félagsleg- og efnahaglseg áhrif á fjölskyldu hans.
Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, birti í dag mynd af föður sínum á Facebook síðu sinni. Með myndinni fylgir texti þar sem Jón fer yfir sögu föður síns sem starfaði í lögreglunni. Hann segir föðir sinn hafa þurft að gjalda fyrir það innan lögreglunnar að vera sósíalisti en ekki sjálfstæðismaður.„Hann hlaut lítinn frama í starfi þótt hann væri bæði vandvirkur og duglegur. Ég vil meina að Sjálfstæðisflokkurinn og aðallega ákveðnir menn innan hans hafi lagt pabba og skoðanabræður hans, í hálfgert einelti. Það að pabbi var "kommi" en aðallega ekki í Sjálfstæðisflokknum hafði félagsleg- og efnahagsleg áhrif á fjölskyldu mína,“ skrifar Jón. Jón Gnarr tekur þó fram að hann beri engann kala til Sjálfstæðisflokksins vegna þessa, tímarnir hafi einfaldega verið svona þá. Hann segist vera stoltur af því að vera sonur föður síns en hann hafi ungur ákveðið að hann vildi vera kallaður Jón Gnarr en ekki Jón Gunnar Kristinsson, eins og hann var skírður. Hann furðar sig á því hve margir sjálfstæðismenn halda í skírnarnafnið hans og veltir fyrir sér hvort tilgangur þess sé að halda áfram einhverskonar einelti gegn föður hans.„Það merkilega er að þeir sem kalla mig Kristinsson eru gjarnan Sjálfstæðismenn. Morgunblaðið, málgagn Sjálfstæðisflokksins, gerir það nær daglega og á einhvern furðulegan hátt er eins og einelti Sjálfstæðisflokksins gegn pabba haldi áfram í gegnum mig.“ Jón segist ekki skammast sín fyrir föðir sinn og segist í dag vera sáttur við að vera sonur þessa merkilega, hrausta og óvenjulega manns. Hann fer að endingu yfir það sem hann kallar þrjú stig dauðans og þakkar Morgunblaðinu. „Það er sagt að dauðinn hafi þrjú stig. Það fyrsta er þegar maður gefur frá sér síðasta andvarpið og augun ljúkast aftur. Annað stigið er þegar maður er jarðaður. Þriðja og síðasta stigið er þegar einhver segir nafnið manns í síðasta sinn. Ég vil því þakka Morgunblaðinu fyrir að halda minningu pabba míns á lofti og hans merkilegu sögu,“ skrifar Jón.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Sjá meira