Innlent

"Það sárvantar stelpur í keppnina"

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Skiptar skoðanir eru um nýsettar reglur um kynjakvóta í spurningakeppninni Gettu betur. Sérstakur málfundur var haldin um málið í Menntaskólanum við Hamrahlíð í dag þar sem fólk mælti ýmist með eða á móti kvótanum.

Gettu Betur greindi frá því í síðustu viku að kynjakvóti verði settur á keppninavorin 2015 og 2016. Er þetta gert til að stuðla að því að keppendur að báðum kynjum taki þátt, en afar fáar stúlkur hafa keppt í Gettu Betur í gegnum tíðina. Verslunarskóli Íslands er andvígur reglunum.

„Það er út í hött að einstaklingar fari í próf og sá sem endar númer átta sé tekin framyfir þá sem eru númer þrjú og fjögur, aðeins vegna kyns. Ég veit líka um margar stelpur sem eru mikið á móti þessu, til dæmis nýsettur liðstjóri í okkar liði. Henni finnst þetta beinlínis niðurlægjandi þar sem hún komst inn á eigin verðleikum," segir Sigurður Kristinsson, forseti NFVÍ.

Menntaskólinn við Hamrahlíð er fylgjandi reglum um kynjakvóta.

„Það hefur sýnt sig og sannað í gegnum þessu 28 ár sem Gettu betur hefur verið haldin að það sárvantar stelpur inn í keppnina. Þá þurfa fleiri stelpur að taka þátt svo þær geti orðið fyrirmyndir fyrir þær sem yngri eru. Stundum þarf bara að grípa inn í," segir Karen Björk Eyþórsdóttir, forseti NFMH.

Kynjakvótinn hefur verið mikið á milli tannanna á fólki síðustu daga og hefur umræða skapast bæði á Facebook og innan veggja framhaldsskólanna. Því þótti ástæða til að halda sérstakan málfund í MH í dag. Mikill hiti var í þeim sem tóku til máls og greinilegt að sitt sýnist hverjum um kynjakvótann í Gettu betur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×