Innlent

"Fótunum var gjörsamlega kippt undan þeim“

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Íslensk kona á fimmtugsaldri lést í bílslysi í Noregi á laugardaginn. Hún lætur eftir sig fjögur börn. Vinkonur konunnar hafa hafið söfnun til að létta undir með börnunum.

Konan sem lést hét Kristin Marti Kasparsdóttir og var 43 ára. Hún var einstæð móðir en börn hennar eru Alda Sól 18 ára, Ægir Máni 17 ára, Unnar Logi 15 ára og Katrín Marey 11 ára. Kerstin var frá Sviss, en bjó á Íslandi í tuttugu ár og var íslenskur ríkisborgari. Hún vann sem kennari í Hveragerði og Vík þar sem hún, og börnin hennar, áttu marga góða vini. Síðustu tvö ár hefur fjölskyldan verið búsett í smábænum Moi í Noregi.

Ása Pálsdóttir, vinkona Kristinar, segir að hún hafi alltaf sett börnin sín í forgang. "Hún var einstök manneskja, drífandi, dugleg og hjartahlý. Hún bjó lengst af ein með börnin og tók fullan þátt í þeirra lífi, hvort sem það var í skólanum, íþróttum, tómstundum eða bara hverju sem er," segir Ása.

Slysið átti sér stað þegar fólksbifreið sem Kristin ók og bifreið sem kom á móti lentu í árekstri. 22 ára gamall maður var í hinni bifreiðinni og er hann alvarlega slasaður. Fjallað var um slysið í norskum fjölmiðlum, en þar kemur fram að konan hafi verið á leið úr dýragarði í Kristiansand ásamt yngstu dóttur sinni og tveimur vinkonum og jafnöldrum hennar.  Önnur vinkonan liggur alvarlega slösuð á sjúkrahúsi en hinar tvær hafa verið útskrifaðar.

Ása segir erfiða framundan hjá börnunum og að fótunum hafi gjörsamlega verið kippt undan þeim. Því hafa vinkonur Kristinar stofnað sérstakan söfnunarreikning fyrir börnin til að létta undir með þeim.

„Þessi sjóður er hugsaður fyrir þau, hvað sem þau kann að vanta og höfum við falið Ívari Páli Bjartmarssyni, fjölskylduvini þeirra til margra ára, að annast úthlutun úr sjóðnum og treystum við engum betur til að meta hvar mesta þörfin er á peningunum hverju sinni,“ segir í tilkynningu.

Reikningsnúmer 0317-13-300022 og kennitala 120668-3319.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×