Innlent

Akurnesingar vilja sameinast Borgarbyggð

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Akranesbær og Borgarbyggð gætu sameinast ef tillögur bæjarfulltrúa Akranesbæjar ná fram að ganga.
Akranesbær og Borgarbyggð gætu sameinast ef tillögur bæjarfulltrúa Akranesbæjar ná fram að ganga. Mynd/Samsett
Bæjarstjórn Akraness vill hefja sameiningarviðræður við sveitarstjórnir Hvalfjarðarsveitar, Skorradalshrepps og Borgarbyggðar. Þetta var samþykkt á fundi bæjarstjórnar í gær en tillaga þeirra Gunnars Sigurðssonar og Einars Brandssonar, bæjarfulltrúa, Sjálfstæðisflokksins, um sameiningarviðræður var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum og bæjarstjóra falið að fylgja málinu eftir.

Í greinargerð sem fylgdi tillögunni kemur fram að á aðalfundi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, sem haldinn var nú í september, hafi innanríkisráðherra greint frá því að sameining sveitarfélaga á Íslandi yrði ekki þvinguð heldur yrði það alfarið að vera í höndum sveitarfélaganna sjálfra að hafa frumkvæði að slíkum viðræðum.

„Mikill vilji er til þess að aukin og flóknari verkefni færist til sveitarfélaga svo sem rekstur heilsugæslu og löggæslu. Til þess að þessi þróun haldi áfram og tryggi um leið bætta þjónustu við íbúa er ljóst að sveitarfélögin þurfa að stækka,“ segir í tilkynningu frá Akranesbæ.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×