Innlent

Lýsa yfir vantrausti á umhverfisráðherra

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfisráðherra, er ekki vinsæll meðal náttúruverndarsinna eftir að hann afturkallaði lög um náttúruvernd.
Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfisráðherra, er ekki vinsæll meðal náttúruverndarsinna eftir að hann afturkallaði lög um náttúruvernd. Mynd/Samsett
Náttúruverndarsamtök Íslands hafa lýst yfir vantrausti á umhverfisráðherra, Sigurði Inga Jóhannssyni. Umhverfisráðherra sendi í gær frá sér yfirlýsingu þess efnis að lög um náttúruvernd verði afturkölluð.

Náttúruverndarsinar segja yfirlýsingu umhverfisráðherra til marks fjandsamlega afstöðu hans til náttúruverndar. „Hann hefur allt á hornum sér. Fyrst lýsti hann vilja sínum til að leggja niður umhverfisráðuneytið, því næst tók hann undir kröfu iðnaðarráðherra um að Norðlingaölduveita yrði byggð þvert á niðurstöður rammáætlunar og lög þar um og nú vill ráðherra rífa niður náttúruverndarlög sem voru nær fjögur ár í undirbúningi. Náttúruverndarsamtök Íslands lýsa yfir vantrausti á umhverfisráðherra,“ segir í tilkynningu frá Náttúruverndarsamtökum Íslands.

Samtökin benda á að í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar standi að hún muni „…vinna að því að Ísland verði í fararbroddi í umhverfismálum og öðrum þjóðum fyrirmynd á sviði umhverfisverndar.“ Þessi stefnulýsing hljómar nú sem öfugmæli að sögn Náttúruverndasamtaka Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×