Innlent

Óánægja með lokun hjólabrettagarðs við Laugalækjarskóla

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Heiða vonast til að lokun garðsins verði endurskoðuð. Til hægri má sjá hinn nýja garð í Laugardal.
Heiða vonast til að lokun garðsins verði endurskoðuð. Til hægri má sjá hinn nýja garð í Laugardal.
Foreldrar í Laugarneshverfi eru ósáttir við lokun hjólabrettagarðs við Laugalækjarskóla. Garðinum var fyrst lokað í fyrra en nú hefur verið lagt á hann gervigras, taflborð og fleira, og ekki stendur til að opna hann á ný.

Að sögn skipulagsstjóra Reykjavíkurborgar var ákveðið að loka garðinum og gera nýjan í Laugardal eftir ítrekaðar kvartanir íbúa í nágrenni við garðinn undan hávaða. Þá hafi ungmenni sótt í garðinn á kvöldin og algengt að bílar væru á svæðinu og hávær tónlist spiluð.

Heiða Birgisdóttir er íbúi í hverfinu og segir hún að garðsins sé sárt saknað af mörgum. „Það er mikil óánægja hjá krökkum með að það sé búið að loka þessu. Margir krakkar stunda ekki aðrar íþróttir og þá er ekkert mikið annað fyrir þau að gera. Þau eru kannski ekki í fótbolta eða öðrum boltaíþróttum. Það er leiðinlegt þegar svona er kippt út úr lífi krakkanna.“

Borgarstjóri fékk bréf

Heiða segir garðinn í Laugardalnum skemmtilegan en mjög ólíkan þeim við Laugalækjarskóla. Í hann komi krakkar alls staðar af úr borginni en yngri krakkar geri sér síður ferð þangað. Hún segir foreldri í hverfinu hafa skrifað borgarstjóra bréf vegna málsins en ekkert svar hafi borist. Þá vonast hún til þess að lokun garðsins verði endurskoðuð.

„Okkur finnst það hljóta að vera einhverjar leiðir til þess að halda þessu opnu með því að loka á ákveðnum tíma á kvöldin þannig að það sé ekki þessi ófriður fyrir nágrannana. Ég var sjálf til dæmis sjálf með verslun á Laugaveginum og við vorum með hjólabrettaramp á bak við. Við settum keðju yfir miðjan rampinn á kvöldin þannig að það var engin leið að nota hann. Það er til dæmis hægt að gera eitthvað þannig en þá þarf auðvitað manneskju að sjá um það. En þegar svona aðstaða er sett upp þá hlýtur að vera hægt að leggja eitthvað í að halda henni uppi.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×