Innlent

Sigurður ráðinn upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Sigurður mun starfa í forsætisráðuneytinu og hefur störf 1. október næstkomandi.
Sigurður mun starfa í forsætisráðuneytinu og hefur störf 1. október næstkomandi.
Sigurður Már Jónsson hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar. Þetta kemur fram á vefsíðu forsætisráðuneytisins.

Sigurður er fæddur árið 1960 og lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Laugarvatni, lagði stund á sagnfræði og stjórnmálafræði við Háskóla Íslands en hefur starfað við blaðamennsku síðan 1985, lengst af á Viðskiptablaðinu þar sem hann var aðstoðarritstjóri og síðast ritstjóri.

Sigurður mun starfa í forsætisráðuneytinu og hefur störf 1. október næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×