Innlent

"Þetta er að gera út af við mig“

Hödd Vilhjálmsdóttir skrifar
Rúmlegur sjötugur karlmaður hefur ekki efni á að láta rannsaka hvað veldur sífelldum verkjum í baki og höfði. Hann segir að verkirinir séu að gera út af við sig.

Samkvæmt upplýsingum fréttastofu er sá hópur sem þarf að neita sér um læknisþjónustu vegna kostnaðar sífellt að stækka. Eins og kom fram í fréttum okkar í gærkvöldi þurftu 6,8% Íslendinga í lágtekjuhópi að neita sér um það árið 2011.

Fréttastofa hefur í dag rætt við fólk sem hefur verið í þessum sporum og svo virðist sem margir eigi ekki einu sinni kost á að fara í viðtal hjá lækni, vegna fjárskorts. Þar á meðal er þrítug, einstæð tveggja barna móðir, sem hefur ekki getað látið endurnýja lyfseðil fyrir þunglyndislyfjum sínum í rúmt ár, þar sem að hún lætur astmalyf fyrir barnið sitt ganga fyrir. Þau áhrif sem lyfjaleysið hefur á daglegt líf hennar eru að hún hirðir ekki sem skyldi um sjálfa sig né heimili sitt, þar sem að börnin hennar fá alla þá orku sem hún á.

Hún er langt frá því sú eina en rúmlega sjötugur karlmaður sem þjáist af bakverk og höfuðverk á hverjum degi, getur ekki leyft sér að láta rannsaka hvað veldur verkjunum. „Þetta er alla daga, kvölds og morgna. Líka á nóttunni og ég vakna við þetta,“ segir hann.

Bakverkjunum lýsir hann þannig að það sé eins verið sé að taka hrygginn úr honum.Til að komast í gegnum daginn og til að sofa á nóttunni þarf maðurinn að taka inn verkjalyf oft á dag. Hann segir þetta taka mikið á sig tilfinningalega og að taugakerfið sé búið á því.

Ef eitthvað kæmi fyrir manninn í dag segist hann ekki hafa efni á því að leggjast inn á spítala og að miklar áhyggjur hafi legið á honum vegna þessa. Hefði hann efni á væri hann farinn til læknis til að komast að því hvað amar að. „Því þetta er að gera út af við mig,“ segir hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×