Innlent

VR menn vilja stöðugleika frekar en launahækkanir

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR segir að það ljóst að þessar niðurstöður þessara kannana sýni  að það að auka kaupmáttinn skipti félagsmenn höfuðmáli við gerð kjarasamninga.
Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR segir að það ljóst að þessar niðurstöður þessara kannana sýni að það að auka kaupmáttinn skipti félagsmenn höfuðmáli við gerð kjarasamninga. mynd/365
Félagsmenn VR vilja að aðaláherslan í næstu kjarasamningum verði lögð á kaupmátt og stöðugleika. Þetta er niðurstaða tveggja kannana meðal félagsmanna sem gerðar voru á síðustu vikum.

Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR segir að það ljóst að þessar niðurstöður þessara kannana sýni  að það að auka kaupmáttinn skipti félagsmenn höfuðmáli við gerð kjarasamninga.

Meirihluti félagsmanna VR eða 63% eru hlynntir því að efnt verði til þjóðarsáttar þar sem áhersla yrði lögð á stöðugleika fremur en launahækkanir. Helstu ástæður fólks fyrir því samkvæmt könnuninni eru að koma í veg fyrir víxlverkun launa og verðlags og til að efla kaupmáttinn. Þeir sem voru andvígir hugmyndinni um þjóðarsátt sögðust hins vegar efins um að staðið yrði við hana, að þjóðarsátt hafi ekki virkað hingað til.

„Við hjá VR höfum líka verið að tala fyrir því að leggja áherslu á þjóðarsátt en með því að nálgast það viðfangsefni, tryggjum við betur kaupmáttaraukninguna“, segir Ólafía.

Hún segir að það sé ekki nóg að tryggja launahækkun í launaumslagi, sem hverfi  svo í einhverjum hækkunum á gjaldskrá viku síðar eða jafnvel samdægurs.

„Með því að auka kaupmátt félagsmanna erum við að leggja það til að það verði áhersla á þjóðarsátt þannig að hægt sé að koma í veg fyrir að launahækkanir fari beint upp í verðlagið,“ segir hún. 

Með þjóðarsátt er átt við að allir aðilar komi að borði, ríkið, Samtök atvinnulífsins,  Samtök Verslunar og þjónustu og fólk á vinnumarkaði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×