Innlent

Átján ára á ofsahraða

Kristján Hjálmarsson skrifar
Lögreglan á Suðurnesjum kærði sex ökumenn fyrir of hraðan akstur í vikunni. Sá sem hraðast ók, átján ára ökuþór, mældist á 144 kílómetra hraða á Grindavíkurvegi, þar sem hámarkshraði er 90 kílómetrar á klukkustund.

Hann gekkst við broti sínu og greiddi sekt á staðnum.

Þá voru skráningarnúmer fjarlægð af fjórum bifreiðum í umdæminu, þar sem þær voru ótryggðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×