Stór mistök að hætta aðildarviðræðum við ESB Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 28. september 2013 16:28 Þorgerður segir öfgar einkenna alla umræðu og segir að þrátt fyrir að hún hafi alltaf verið á móti því að færa flugvöllinn úr Vatnsmýri megi alveg hlusta á röksemdir hinna.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fyrrverandi menntamálaráðherra, telur það hafa verið mistök að hætta aðildarviðræðum við ESB. Í viðtali við Fréttablaðið í dag segist hún hafa trú á Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra og Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra. „Ég treysti Bjarna, ég hef unnið með honum og veit hvaða mann hann hefur að geyma. Ég segi við fólk sem er að gagnrýna hann og Sigmund Davíð: Gefið þeim svigrúm, sýnið þeim sanngirni,“ segir Þorgerður í viðtalinu en segir jafnframt að þeim verði ekki hlíft ef þeir vindi sér ekki í þau verkefni sem fólk kallar eftir. „Ég hef trú á þeim þótt þeir hafi gert stór mistök með því að hætta aðildarviðræðum við ESB. Það var heimskulegt og ekki í þágu íslenskra hagsmuna.“ Þorgerður segist vera talsmaður öflugs íslensks sjávarútvegs og íslensks landbúnaðar. „En ég vil forðast umræður eins og: Annaðhvort ert þú á móti Evrópusambandinu eða þú ert ekki sannur Íslendingur. Annaðhvort viltu landbúnaðarkerfi eins og það er nú eða þú ert á móti bændum. Annaðhvort ertu með flugvellinum eða á móti allri landsbyggðinni.“ Hún segir öfgar einkenna alla umræðu og segir að þrátt fyrir að hún hafi alltaf verið á móti því að færa flugvöllinn úr Vatnsmýri megi alveg hlusta á röksemdir hinna sem vilja hann burt. „Það er auðvitað fullt af verðmætum í Vatnsmýrinni. Við sem styðjum flugvöll þar verðum að minnsta kosti að geta svarað því hvert við viljum að byggðin þróist á höfuðborgarsvæðinu og hver eigi að bera kostnaðinn af því. Þessi öfgakennda umræða á öllum málasviðum finnst mér skemma mest í íslensku samfélagi. Það er allt „annaðhvort eða“. Ég er orðin pínu þreytt á því.“Viðtalið við Þorgerði Katrínu í heild sinni.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Sjá meira