Viðskipti innlent

O'Brian stýrir framleiðslu á nýjasta leik CCP

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Skjáskot úr nýjasta leik CCP.
Skjáskot úr nýjasta leik CCP.
Framleiðsla á nýjum tölvuleik CCP, EVE: Valkyrie, er í fullum gangi. Nýverið gekk fyrirtækið frá ráðningu Owen O'Brian sem mun starfa á skrifstofu fyrirtækisins í Newcastle á Englandi. Hann mun stýra framleiðslu og þróun leikjarins.

EVE: Valkyrie, sem kemur út á næsta ár, var kynntur til leiks á Gamescom ráðstefnunni í Þýskalandi í síðasta mánuði. Leikurinn byggir á nýrri tækni á sviði sýndarveruleika (e. virtual reality) þar sem spilurum er gefinn kostur á að gerast flugmenn í geimskipum í EVE heiminum.

Leikurinn er hraður og óvæginn þar sem spilarar eigast við í skotbardögum. Sýndarveruleikinn sem leikjahönnun EVE: Valkyrie byggir á gerir upplifunina einstaklega raunverulega og þannig úr garði gerða að það er engu líkara en spilari leiksins sé kominn í flugstjórasæti geimskipsins, þar sem hann mætir óvinum sínum og hættum.

Með EVE: Valkyrie er tilraunaverkefni CCP, EVE-VR, gefið framhaldslíf. Fyrsta útgáfa tilraunarinnar lét dagsins ljós á EVE Fanfest hátíðinni í Reykjavík í maí síðastliðnum þar sem hún vakti verðskuldaða athygli. Í kjölfarið ákvað CCP að þróa hugmyndina áfram og gera nýja útgáfu af EVE-VR til að prufa á stærstu leikjaráðstefnu heims, E3 ráðstefnunni í Los Angeles, sem fram fór í júní. Það er skemmst frá því að segja að EVE-VR var gríðarvel tekið á E3 og blaðamenn kepptust þar við að hlaða þennan tilraunaleik CCP lofi. Tímaritið PC Gamer útefndi EVE-VR leik E3 ráðstefnunnar (“Game of E3 2013”) og einn öflugasti fjölmiðill tölvuleikjageirans, IGN, valdi hann framsæknasta leikinn (“Most innovative game of E3”).

Owen O'Brian mun stýra framleiðslu á EVE: Valkyrie.Mynd/CCP





Fleiri fréttir

Sjá meira


×