O'Brian stýrir framleiðslu á nýjasta leik CCP Jón Júlíus Karlsson skrifar 12. september 2013 14:23 Skjáskot úr nýjasta leik CCP.
Framleiðsla á nýjum tölvuleik CCP, EVE: Valkyrie, er í fullum gangi. Nýverið gekk fyrirtækið frá ráðningu Owen O'Brian sem mun starfa á skrifstofu fyrirtækisins í Newcastle á Englandi. Hann mun stýra framleiðslu og þróun leikjarins. EVE: Valkyrie, sem kemur út á næsta ár, var kynntur til leiks á Gamescom ráðstefnunni í Þýskalandi í síðasta mánuði. Leikurinn byggir á nýrri tækni á sviði sýndarveruleika (e. virtual reality) þar sem spilurum er gefinn kostur á að gerast flugmenn í geimskipum í EVE heiminum. Leikurinn er hraður og óvæginn þar sem spilarar eigast við í skotbardögum. Sýndarveruleikinn sem leikjahönnun EVE: Valkyrie byggir á gerir upplifunina einstaklega raunverulega og þannig úr garði gerða að það er engu líkara en spilari leiksins sé kominn í flugstjórasæti geimskipsins, þar sem hann mætir óvinum sínum og hættum. Með EVE: Valkyrie er tilraunaverkefni CCP, EVE-VR, gefið framhaldslíf. Fyrsta útgáfa tilraunarinnar lét dagsins ljós á EVE Fanfest hátíðinni í Reykjavík í maí síðastliðnum þar sem hún vakti verðskuldaða athygli. Í kjölfarið ákvað CCP að þróa hugmyndina áfram og gera nýja útgáfu af EVE-VR til að prufa á stærstu leikjaráðstefnu heims, E3 ráðstefnunni í Los Angeles, sem fram fór í júní. Það er skemmst frá því að segja að EVE-VR var gríðarvel tekið á E3 og blaðamenn kepptust þar við að hlaða þennan tilraunaleik CCP lofi. Tímaritið PC Gamer útefndi EVE-VR leik E3 ráðstefnunnar (“Game of E3 2013”) og einn öflugasti fjölmiðill tölvuleikjageirans, IGN, valdi hann framsæknasta leikinn (“Most innovative game of E3”).Owen O'Brian mun stýra framleiðslu á EVE: Valkyrie.Mynd/CCP
Mest lesið Stígur til hliðar vegna „ólíkrar sýnar“ á breytingar Viðskipti innlent Davíð nýr framkvæmdastjóri áfangastaða hjá Arctic Adventures Viðskipti innlent Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Viðskipti innlent Hótar þrjátíu prósenta tolli á ESB Viðskipti erlent Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Viðskipti innlent Segir búið að „dauðadæma Vefjuna“ vegna ummæla Reynis Viðskipti innlent Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Viðskipti innlent Íbúðum í byggingu fækkar Viðskipti innlent Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Viðskipti innlent Gleymdi að skrá sig úr stæðinu og því rukkuð um 48 þúsund Neytendur Fleiri fréttir Stígur til hliðar vegna „ólíkrar sýnar“ á breytingar Davíð nýr framkvæmdastjóri áfangastaða hjá Arctic Adventures Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Íbúðum í byggingu fækkar Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Atli Óskar ráðinn rekstrarstjóri framleiðslu Engin U-beygja hjá Play Veitingamenn verulega óánægðir með eftirlitið Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Spá umtalsverðum samdrætti í byggingu nýrra íbúða Falsaði fleiri bréf Veltir því upp hvort eigendum hafi verið refsað fyrir að tjá sig Hætta við yfirtökuna Harpa og Linda ráðnar forstöðumenn Stærsti samruninn í áraraðir á borð Samkeppniseftirlitsins Sylvía Kristín ráðin forstjóri Nova Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Farþegum til landsins fjölgaði um tuttugu prósent Kvika hafi grætt töluvert á því að hafna upphaflegum tilboðum „Sem betur fer eru aðrir fiskar í sjónum“ Arion og Kvika í samrunaviðræður Eyþór hættur sem framkvæmdastjóri Hopp Svona munu stækkuð Skógarböð og hótel líta út Skrautleg saga laganna hans Bubba Sætta sig ekki við höfnun Kviku Sjá meira