"Ótækt að hækka gjaldskrá án mótframlags“ 16. september 2013 19:00
Menntamálaráðherra segir það algjörlega ótækt að gjaldskrá túlkaþjónustu heyrnalausra hafi verið hækkuð án þess að lagðir væru meiri fjármunir til málsins á móti. Fyrrum ríkisstjórn tók endanlega ákvörðun um hækkun á gjaldskrá túlkaþjónustu heyrnalausra í maí síðastliðnum og var sú hækkun upp á 45%. Eins og kom fram í fréttum okkar um helgina hefur þessi hækkun komið illa við þá sem þurfa á slíkri þjónustu að halda, sérstaklega í ljósi þess að ekkert fjármagn var lagt til frá menntamálaráðuneytinu til að mæta þessum hækkunum. Framlag til að tryggja heyrnarlausum túlkaþjónustu vegna daglegs lífs hefur verið tíu milljónir króna á ári frá árinu 2004 og eru þessar tíu milljónir fyrir 2013 búnar. Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra segir að þegar tekin var ákvörðun um hækkun gjaldskrárinnar, án þess að fjármagn væri aukið, hafi í raun og veru verið tekin ákvörðun um að skerða þjónustuna sem nam þessum 45%. Illugi hefur kallað eftir því hjá nefnd sem nú starfar við að fara yfir málefni heyrnalausra að hún flýti sinni vinnu, en nefndin mun gera tillögur um hvaða aðili skuli bera kostnað af túlkuninni. „Þörfin er þessi. Hún er mjög brýn og þetta er hópur sem að þarf á þessari þjónustu að halda. Ég geri mér alveg grein fyrir þvi,“ segir hann. Fjármunir til að dekka kostnað fyrir túlkaþjónustu tengdri daglegum þörfum heyrnalausra, út árið, eru ekki til í menntamálaráðuneytinu og segir Illugi að hann hefði auðvitað viljað að það hefði verið haldið öðruvísi á þessum málum. „Mér finnst sjálfum algjörlega ótækt að gera þetta eins og lagt var upp með, að hækka gjaldskrána um 45% án þess að leggja fram meiri fjármuni til málsins. Þá lenda menn einmitt í þessari stöðu,“ segir hann.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fleiri fréttir Slökkvilið í útkalli á Hringbraut Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Sjá meira