Selfyssingar skelltu toppliði Grindavíkur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. ágúst 2013 19:58 Mynd/Daníel
Tvö af efstu liðum 1. deildar karla, Grindavík og Fjölnir, töpuðu leikjum sínum í kvöld og um leið kom enn meiri spenna í gríðarlega jafna baráttu um laus sæti í Pepsi-deild karla næsta sumar. Grindavík steinlá á Selfossi en Fjölnir tapaði óvænt 1-3 á heimavelli á móti Þrótti. Selfossliðið fór á kostum á móti Grindavík og lögðu toppliðið 3-0 á heimavelli sínum. Svavar Berg Jóhannsson, Þorsteinn Daníel Þorsteinsson og Luka Jagacic skoruðu mörkin í þessum þriðja sigri Selfossliðsins í röð. Grindvíkingar voru búnir að vinna fjóra leiki í röð og voru með tveggja stiga forskot á toppnum. Selfyssingar hafa greinilega tak á Grindvíkingum því þeir unnu fyrri leik liðanna í Grindavík 3-1. Þróttarar náðu í dýrmæt stig í fallbaráttunni með því að sækja þrjú stig í Grafarvoginn. Þróttur komst í 2-0 í fyrri hálfleik og vann leikinn á endanum 3-1 sigur. Fjölnir missti Hilmar Þór Hilmarsson af velli með rautt spjald í lokin. KA vann síðan 5-1 stórsigur á Tindastól á heimavelli en bæði KA og Selfoss nálgast toppbaráttuna þótt að góður endasprettur liðanna sé kannski að koma aðeins of seint. Upplýsingar um markaskorar eru af hluta fengnar af vefsíðunni úrslit.net en einnig af heimasíðu KSÍ.Úrslit og markaskorarar í 1. deild karla í kvöld:KA - Tindastóll 5-1 1-0 Gunnar Valur Gunnarsson (18.), 2-0 Gunnar Örvar Stefánsson (25.), 3-0 Ævar Ingi Jóhannesson (48.), 4-0 Ævar Ingi Jóhannesson (52.), 5-0 Brian Gilmour (58.), 5-1 Jordan A Branco (87.)Selfoss - Grindavík 3-0 1-0 Svavar Berg Jóhannsson (17.), 2-0 Þorsteinn Daníel Þorsteinsson (48.), 3-0 Luka Jagacic (66.) Fjölnir - Þróttur R. 1-3 0-1 Sveinbjörn Jónasson (15.), 0-2 Aron Ýmir Pétursson (36.), 1-2 Aron Sigurðarson (39.), 1-3 Andri Björn Sigurðsson (90.+3).
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Sjá meira