Innlent

Harpa tilnefnd til tvennra verðlauna

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Harpa hefur verið tilnefnd til fjölmargra verðlauna.
Harpa hefur verið tilnefnd til fjölmargra verðlauna.
„Við erum agalega montin,“ segir Helga Thors, markaðsstjóri Hörpu, tónlistar og ráðstefnuhúss en Harpa hefur verið tilnefnd til tveggja verðalauna, LEAF verðlaunanna og WAN verðlaunanna.

„Þetta er bara enn ein fjöðrin í hnappagat Hörpu. Við erum búin að fá svo margar tilnefningar og mörg verðlaun, en í vor hlaut Harpa evrópsku arkítektúraverðlaunin Mies van der Rohe sem eru stærstu arkitektarverðalunin .“

„Arkitektastofan Henning Larsen og Batteríið Arkitektar sáu um hönnun fyrir húsið og Ólafur Elíasson er listamaðurinn af glerhjúpnum yfir Hörpu.“

„Harpa var tilnefnd til LEAF verðlaunanna, The Emirates Glass LEAF Awards í flokknum opinberar bygginar ársins, menning. LEAF eru alþjóðleg samtök arkitekta sem starfa í Evrópu og voru stofnuð árið 2001. Samtökin veita verðlaun einu sinni á hverju ári þeim arkitektum sem hafa nýjungar og framsækni að leiðarljósi í hönnun sinni. Verðlaunaðar eru byggingar þar sem hönnunin markar þáttaskil í byggingarlist komandi kynslóða.“

Fjórar aðrar opinberar byggingar eru tilnefndar í þessum flokki. Hinar byggingarnar eru sjávarsafnið Blue Planet Aquarium í Kaupmannahöfn, risagarðhýsin Gardens by the bay í Singapore, margmiðlunarsafnið Médiathèque Mont de Marsan í París og kirkjugarðurinn Andrea Dragoni Architetto í Gabbio á Ítalíu.

Verðlaunaathöfnin fer fram í London 20. september. Fjórar byggingar af þessum fimm tilnefndu eiga það sameiginlegt að hönnun þeirra er að miklu leyti unnin úr gleri.

Hin verðlaunin sem Harpa er tilnefnd til eru WAN verðlaunin, Performing Spaces Awards. WAN verðlaunin eru í eigu vefritsins WorldArcitectureNews.com og eru mjög umsvifamikil alþjóðleg arkitektaverðlaun. Harpa er þar tilnefnd í flokknum Framhlið og ásýnd ársins 2013. „Harpa er þar ásamt 40 öðrum byggingum og það eru 300 dómarar sem gefa atkvæði sín í þeirri kosningu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×