Veigar Páll: Eyrað rifnaði í köku Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 31. júlí 2013 17:15 Veigar Páll með bleiku umbúðirnar um höfuðið í Ólafsvík. Mynd/Skjáskot
Framherji Stjörnumanna, Veigar Páll Gunnarsson, fór beint upp á spítala við komuna á höfuðborgarsvæðið eftir 1-1 jafnteflið gegn Víkingi í Ólafsvík á sunnudaginn. Athygli vakti að Veigar Páll lék með bleikt band um hausinn stóran hluta leiksins eftir að hann meiddist á eyra. „Ég lenti í einhverju skallaeinvígi við leikmann þeirra. Hann lendir svo ofan á mér, dregur höndina niður, ofan á eyrað á mér og festist í eyranu á mér," segir Veigar Páll sem fékk vænan skurð svo binda þurfti um höfuð hans. „Efsti hlutinn á eyranu, þar sem það festir við hausinn, rifnaði í köku. Ég fór upp á spítala um leið og ég kom í bæinn. Læknarnir sögðu að skurðurinn væri svo flottur að þeir gætu límt hann saman," segir Veigar Páll. Stjarnan tekur á móti KR í undanúrslitaleik Borgunarbikars karla annað kvöld. Framherjinn segist vera klár í slaginn en muni væntanlega spila með umbúðir um eyrað á morgun þótt óvíst sé hvort þær verði bleikar. Mikill hiti var í mönnum í Ólafsvík og sakaði Garðar Jóhannsson, hinn framherji Stjörnunnar, leikmann heimaliðsins um að hafa hrækt á sig. Veigar þvertók hins vegar fyrir að um viljaverk hefði verið að ræða í hans tilfelli enda hefði þurft allsérstaka tækni til.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Handbolti Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira